Fara í efni

Gott að eldast í Hvalfjarðarsveit

Miðvikudaginn 6. nóvember kl. 13 verður opið hús fyrir íbúa Hvalfjarðarsveitar í Miðgarði þar sem kynnt verður verkefnið Gott að eldast i Hvalfjarðarsveit.

Dagskrá fundarins:

Sveitastjóri býður fólk velkomið
Gott að eldast og tengiráðgjöf – Laufey Jónsdóttir, tengiráðgjafi
,,Það er pláss fyrir alla" - Vitundavakning Félags- og vinnumarkaðsráðuneytis um félagslega einangrun.
Líney Úlfarsdóttir sálfræðingur og Svavar Knútur söngvaskáld

Samvera og kaffiveitingar í lok fundar

Öll velkomin!