Fara í efni

Göngur og réttir í Hvalfjarðarsveit 2017

A.  Leitarsvæði Núparéttar. Skv. fjallskilareglugerð nær leitarsvæði Núparéttar að merkjum Hlíðarfótar og Eyrar í Svínadal. 

Fyrri leit er laugardaginn 9. september og seinni leit laugardaginn 23. september. Fyrri rétt er sunnudaginn 10. september kl.13 en seinni rétt er laugardaginn 23. september þegar smölun lýkur. 

Leitarstjórar eru Baldvin Björnsson og Magnús Ingi Hannesson. 

Réttarstjóri er Baldvin Björnsson. 

Marklýsingamenn eru Helgi Bergþórsson og Atli Viðar Halldórsson. 

Skilamenn í Hornsrétt eru Baldvin Björnsson og Hannes Adolf  Magnússon.

 

B.  Leitarsvæði Reynisréttar. Fyrri leit er laugardaginn 23. september og seinni leit laugardaginn 30. sept. Réttað er að smölun lokinni. 

Leitarstjórar eru Bjarki Borgdal Magnússon og Ólafur Sigurgeirsson. 

Réttarstjóri er Lilja Guðrún Eyþórsdóttir. 

Marklýsingamenn eru Ólafur Sigurgeirsson og Haraldur Benediktsson.

 

C.  Leitarsvæði Svarthamarsréttar. Fyrri leit er föstudaginn 8. og laugardaginn 9. september og seinni leit laugardaginn 30. september og sunnudaginn 1. október. Fyrri rétt er sunnudaginn 10. sept. kl. 10 og seinni rétt sunnudaginn 1. október þegar leit lýkur. 

Leitarstjóri er Guðmundur Sigurjónsson. 

Réttarstjóri er Arnheiður Hjörleifsdóttir. 

Marklýsingamenn eru Guðmundur Sigurjónsson og Guðmundur Brynjólfur Ottesen. 

Skilamenn í Oddstaðarétt eru Stefán Gunnar Ármannsson og Guðbjartur Þór Stefánsson.