Fara í efni

Gjöf til leikskólans frá Kvenfélaginu Lilju

Kvenfélagið Lilja gaf leikskólanum Skýjaborg veglega gjöf um áramótin, en kvenfélagið keypti tvö hjól og fjóra sparkbíla ásamt tveimur stöngum sem hægt er að setja á sparkbílana svo þau allra yngstu geta notið líka.
Seinnipartinn í janúar fengu börnin gjöfina afhenta í söngstund og var mikil gleði með þessa fallegu gjöf. Í þakklætisskyni var kvenfélagskonum boðið í kaffi í leikskólann þann 11. febrúar sl.  

Börn og starfsfólk í Skýjaborg sendir kvenfélaginu sínar bestu þakkir fyrir þessa fallegu og veglegu gjöf sem mun nýtast vel.