Fara í efni

Gjaldskrárbreytingar 2025

Helstu breytingar gjaldskrár fyrir meðhöndlun úrgangs, m.a. í tengslum við innleiðingu nýrra laga, eru eftirfarandi:

  • Fastagjald lagt á íbúðarhús til reksturs grenndarstöðva
  • Lækkun gjalds á ílátum fyrir pappír og plast  
  • Aðgangur að endurvinnslustöð Gámu, en klippikort detta út 1. apríl nk. og gjaldtaka miðast við m3  afsetts úrgangs skv. gjaldskrá stöðvarinnar ásamt komugjaldi
  • Möguleiki á samnýtingu íláta og stærðarvali íláta

Sjá nánar í gjaldskrá.

Rétt flokkun leiðir til lægra gjalds, t.a.m. er mikilvægt að fá meira af pappír og plasti þar sem Úrvinnslusjóður endurgreiðir fyrir þá strauma.

Mikil tækifæri eru til betri flokkunar eins og sjá má á eftirfarandi samantekt sem sýnir að almennt sorp er ennþá of hátt hlutfall, bæði hjá heimilum og á grenndarstöðvum.

Óheimilt er með öllu að setja úrgang fyrir utan gáma á grenndarstöðvum, það leiðir til hækkunar gjalds.

Biðlað er til íbúa og gesta að huga vel að réttri flokkun úrgangs, rúmmáli og virða reglur um umgengni grenndarstöðva því aðeins þannig næst árangur öllum til hagsbóta í því skyni að takmarka kostnað við málaflokkinn og sýna umhverfinu virðingu.

 Helstu breytingar gjaldskrár fyrir fráveitu og meðhöndlun seyru eru eftirfarandi:

  • Gjald miðast við stærð rotþróa, þrír gjaldflokkar.  
  • Nýtt gjald fyrir hreinsistöð /demant
  • Tengigjald við fráveitukerfi 

Sjá nánar í gjaldskrá.