Fundir um vegamál á Vesturlandi
11. október 2019
Á fundunum mun Ólafur Guðmundsson ráðgjafi, sem um árabil hefur annast EuroRap öryggismat á vegakerfinu á Íslandi, kynna úttekt sína og mat á vegum á Vesturlandi. Að kynningu Ólafs lokinni verða umræður um vegamál.
Við hvetjum Vestlendinga til að mæta á fundina og kynna sér úttekt Ólaf á vegakerfinu.
Allir velkomnir
SSV.
Fundirnir verða haldnir á eftirtöldum stöðum:
- Stykkishólmur: Amtsbókasafnið - miðvikudaginn 16. október kl. 16:00.
- Búðardalur: Dalabúð - miðvikudaginn 16. október kl. 20:00.
- Borgarnes: Hótel B59/Salur ömmu Gógó - fimmtudaginn 17. október kl. 17:00.
- Hvalfjarðarsveit: Miðgarður - fimmtudaginn 17. október kl. 20:00.