Fara í efni

Framkvæmdasjóður ferðamannastaða auglýsir eftir styrkumsóknum

Framkvæmdasjóður ferðamannastaða auglýsir eftir umsóknum um styrki fyrir árið 2025.

Sjóðurinn fjármagnar framkvæmdir á ferðamannastöðum og ferðamannaleiðum í eigu eða umsjón sveitarfélaga og einkaaðila. Umsóknarfrestur er til kl. 13 þriðjudaginn 15. október 2024. Umsóknir sem berast eftir þann tíma koma ekki til álita.

Í úthlutuninni er lögð áhersla á minna sótt svæði og lengingu ferðatímabils. Gæðamat sjóðsins mun taka mið af þessari áherslu og eru umsækjendur hvattir til að kynna sér nýtt gæðamatsblað sjóðsins.

Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér vel þau lög og reglur sem um sjóðinn gilda og vanda umsóknir sínar í hvívetna. Umsækjendum er bent á að kynna sér gæðaviðmið sjóðsins sbr. gæðamatsblað ásamt frekari upplýsingum um sjóðinn, skilyrði lánveitenda og umsóknarferlið, sem finna má á umsóknarsíðu. - https://www.ferdamalastofa.is/umsoknir

Umsóknum skal skilað rafrænt í gegnum island.is en hlekkur á umsókn er á umsóknarsíðu.
https://www.ferdamalastofa.is/umsoknir