Fara í efni

Forsetakosning 2016 - Aðhald fyrir hross o.fl.

Hvalfjarðarsveit hefur látið útbúa aðhald fyrir hross við stjórnsýsluhúsið í Melahverfi og er það sérstaklega hugsað fyrir þá kjósendur sem koma ríðandi á kjörstað.

Vonast er til að sem flestir nýti sér aðstöðuna.

Að venju býður Hvalfjarðarsveit uppá veitingar í anddyri stjórnsýsluhúss meðan kjörfundur stendur yfir.

Nýtum kosningaréttinn!

 

Skúli Þórðarson, sveitarstjóri.