Fara í efni

Fjárhagsáætlun Hvalfjarðarsveitar samþykkt

Fjárhagsáætlun Hvalfjarðarsveitar fyrir árið 2016 ásamt þriggja ára áætlun áranna 2017-2019 var samþykkt á fundi sveitarstjórnar þann 15. desember sl.

Samkvæmt fjárhagsáætluninni er gert ráð fyrir að á árinu 2016 verði rekstrarniðurstaða samstæðu A og B hluta jákvæð um 17,7 millj. króna.
Áætlað er að tekjur A og B hluta verði um 717,5 millj. kr. og að rekstrargjöld verði um 727,3 millj. kr.
Handbært fé í árslok 2016 er áætlað kr. 23,5 millj. kr.
Eignfærð fjárfesting á árinu 2016 er alls 85 millj. kr.
Gert er ráð fyrir að veltufé frá rekstri verði um 65,2 millj. króna eða tæp 10 % af skatttekjum.

Gjaldskrárbreytingar frá árinu 2015 eru óverulegar en almennt er gjaldskrám breytt í samræmi við þróun verðlags.

Samkvæmt fjárhagsáætlun 2016 verða fjármunir lagðir til fjárfestinga en þar er helst um að ræða fyrirhugaðar framkvæmdir við gatnagerð í Melahverfi og framkvæmdir í tengslum við vatnsveitu og hitaveitu.

Í þriggja ára áætlun, áranna 2017, 2018 og 2019, er gert ráð fyrir jákvæðri rekstrarafkomu öll árin. Niðurstaða fyrir hvert ár er eftirfarandi:  
2017: Jákvæð rekstrarafkoma að fjárhæð 38,4 millj. kr. og handbært fé í árslok 63,1 millj. kr.
2018: Jákvæð rekstrarafkoma að fjárhæð 34,1 millj. kr. og handbært fé í árslok 86 millj. kr.
2019: Jákvæð rekstrarafkoma að fjárhæð 36,1 millj. kr. og handbært fé í árslok 109,2 millj. kr.

Þá hefur sveitarstjórnin áform um að lækka álagningu útsvars á kjörtímabilinu eins og frekast er kostur.
Á tímabilinu verður einnig ráðist í fjárfestingar en þar er aðallega um að ræða fyrirhugaðar framkvæmdir tengdar vatnsveitu og hitaveitu.

Fjárhagsáætlun Hvalfjarðarsveitar fyrir árið 2016 og þriggja ára áætlun 2017-2019 verður kynnt á íbúafundi líkt og sl. ár. Tímasetning þeirrar kynningar verður auglýst síðar.

 

 

Hvalfjarðarsveit 22. desember 2015
Skúli Þórðarson, sveitarstjóri.