Fjárhagsáætlun Hvalfjarðarsveitar 2025-2028
Fjárhagsáætlun Hvalfjarðarsveitar fyrir árið 2025 ásamt þriggja ára áætlun 2026-2028 var samþykkt á fundi sveitarstjórnar þann 27. nóvember sl.
Um er að ræða áætlun til næstu fjögurra ára en í henni kveður við sama tón og undanfarin ár þar sem lagt er upp með uppbyggingu innviða í takt við framtíðarþarfir samfélagsins, huga að og sinna eðlilegu og nauðsynlegu viðhaldi eigna ásamt góðu þjónustustigi við íbúa.
Við áætlunargerðina var, líkt og áður, lögð áhersla á að tekjuáætlun væri varfærin, útgjaldaáætlun raunsæ og að ekki sé gengist undir skuldbindingar sem raskað geti forsendum í rekstri og afkomu sveitarfélagsins til lengri tíma.
Forsendur fjárhagsáætlunar:
Í áætluninni er stuðst við upplýsingar frá Þróunarsviði Sambands íslenskra sveitarfélaga og útsvarsáætlun þeirra auk Þjóðhagsspá Hagstofu Íslands vegna þróunar verðlags fyrir komandi ár. Aðrar forsendur sem horft er til er útkomuspá yfirstandandi árs og átta mánaða árshlutauppgjör ársins.
Launaáætlun var unnin út frá raunforsendum á öllum deildum og forstöðufólk yfirfór þær. Kjarasamningar voru allir lausir á yfirstandandi ári og ennþá er ósamið við einstaka stéttarfélög líkt og KÍ sem leiðir til ákveðinnar óvissu um launabreytingar komandi árs en reynt var að nálgast þær út frá þeim samningum sem liggja fyrir sem og reynslu fyrri ára. Það var einnig, eins og áður, gert ráð fyrir tilfallandi veikindum en engum langtímaveikindum.
Almenn nefndarlaun voru í flestum tilfellum áætluð 11 mánuði ársins, þ.e. ekki er gert ráð fyrir fundum á sumarleyfistíma, í júlí.
Útsvar:
Álagningarhlutfall útsvars árið 2025 verður óbreytt frá fyrra ári eða 14,14%.
Stuðst er við staðgreiðsluáætlun Sambands íslenskra sveitarfélaga við áætlun útsvarstekna sem gerir ráð fyrir 6,4% meðaltalshækkun útsvarsstofns á landsvísu milli áranna 2024 og 2025.
Jöfnunarsjóðsframlag:
Framlag úr Jöfnunarsjóði vegna málefna fatlaðra er áætlað skv. upplýsingum frá sjóðnum.
Fasteignaskattur og lóðarleiga:
Álagningarhlutföll fasteignaskatts árið 2025 verða óbreytt frá fyrra ári en þau eru eftirfarandi:
- A-flokkur 0,36%
- B-flokkur 1,32%
- C-flokkur 1,65%
Lóðarleiga verður einnig óbreytt eða 1,0%.
Fasteignagjöld og aðrar gjaldskrár:
Nýjar gjaldskrár hafa verið samþykktar fyrir meðhöndlun úrgangs og fyrir fráveitu og meðhöndlun seyru. Nýafstaðið útboð á úrgangshirðu hafði blessunarlega ekki mikil áhrif á heildarkostnað við málaflokkinn en innleiðing þeirra laga sem tóku gildi í upphafi þessa árs og m.a. gera ríkari kröfur um flokkun úrgangs hafa einnig áhrif til breytinga á gjaldskránni. Nýsamþykkt gjaldskrá vegna meðhöndlunar seyru kveður á um breytingar árlegs rotþróargjalds þar sem gjald verður nú tengt stærð rotþróa og eru gjaldaflokkarnir samtals fjórir en eins og áður er árlegt rotþróargjald innheimt til tæmingar þriðja hvert ár.
Ofangreindum þjónustugjöldum er ætlað og þau eiga að standa undir raunkostnaði við málaflokka.
Aðrar gjaldskrár sveitarfélagsins, s.s. frístundar, ljósleiðara, hundahalds og leikskóla eru vísitölubundnar og hækka skv. því um komandi áramót.
Rekstur:
Rýnt var vel í reksturinn og forstöðufólk, í samstarfi við viðkomandi fagnefndir, fóru vel yfir alla kostnaðarliði m.t.t. raunþróunar þeirra auk þess sem einskiptisliðir yfirstandandi árs voru teknir út og nýir liðir settir inn fyrir komandi ár.
Viðhald:
Árið 2025 eru áætlaðar 55mkr. til viðhalds eigna sveitarfélagsins, hæsta fjárhæð til viðhalds í eignasjóði er áætluð til Heiðarskóla, 10,2mkr., til Hitaveitu 6,5mkr., til Skýjaborgar eru áætlaðar 5,2mkr., til Heiðarborgar 5,1mkr., til sundlaugarinnar á Hlöðum 4,7mkr. og lægri fjárhæðir til annarra eigna en líkt og áður er þess gætt að vel sé hlúð að öllum eignum í takt við þarfir hverju sinni.
Fjárfesting/framkvæmdir:
Framkvæmdaáætlun næsta árs gerir ráð fyrir samtals 933mkr. til fjárfestinga. Stærsta einstaka fjárfestingin er áframhaldandi bygging nýs íþróttahúss við Heiðarborg sem hófst á árinu en 770mkr. eru á framkvæmdaáætlun næsta árs til verkefnisins. Gert er ráð fyrir 80mkr. til áframhaldandi gatnagerðar í Melahverfi, eða 3. áfanga hverfisins, til undirbúningsvinnu að byggingu nýs leikskóla eru áætlaðar 35mkr., til áframhaldandi göngu- og reiðhjólastígagerðar 18mkr. og 20mkr. til opins svæðis í Krosslandi ásamt 10mkr. framlagi til fjárfestinga Vatnsveitufélags Hvalfjarðarsveitar.
Árið 2026 er gert ráð fyrir 704mkr. til fjárfestinga, árið 2027 eru 703mkr. og árið 2028 eru 123mkr.
Á næstu fjórum árum eru því ráðgerðir tæpir 2,5 milljarðar til framkvæmda í Hvalfjarðarsveit, til byggingu nýs íþróttahúss, hönnunar og framkvæmda við nýjan leikskóla, áframhaldandi gatnagerðar og göngu- og reiðhjólastígagerðar ásamt hlutdeild í kaupum dælubíls slökkviliðs og hlutdeild í vatnsveituframkvæmdum.
Lántaka:
Ekki er gert ráð fyrir lántöku í áætluninni.
Niðurstaða fjárhagsáætlunar 2025:
- Heildartekjur samstæðu A og B hluta á árinu 2025 eru áætlaðar 1.591,2mkr. Heildargjöld eru áætluð 1.549,4mkr. Þar af eru launagjöld 763,8mkr., annar rekstrarkostnaður 714,2mkr. og afskriftir 71,4mkr.
- Heildartekjur í A-hluta eru áætlaðar 1.560,7mkr. og heildarútgjöld eru áætluð 1.529,7mkr. Þar af eru laun og launatengd gjöld 763,8mkr., annar rekstrarkostnaður 700,6mkr. og afskriftir 65,3mkr.
- Fjármunatekjur eru áætlaðar 113,2mkr. bæði í A og B hluta og í A hluta.
- Rekstrarafgangur A og B hluta er áætlaður 154,9mkr. og í A-hluta 144,2mkr.
- Skuldir og skuldbindingar A og B hluta í árslok 2025 eru áætlaðar 150,3mkr. og 170,4mkr. í A-hluta.
- Eigið fé A og B hluta er áætlað 4.969mkr. og A hluta 4.941,8mkr.
- Veltufé frá rekstri árið 2025 í A og B hluta er áætlað 223,7mkr. en 206,8mkr. ef einungis er litið til A hluta.
- Fjárfesting í A og B hluta er áætluð 933mkr. árið 2025.
- Afborganir langtímalána eru engar og ekki er gert ráð fyrir að taka ný langtímalán á áætlunartímabilinu.
- Áætlað er að í árslok 2025 verði handbært fé um 1.289,8mkr.
Forsendur fjárhagsáætlunar fyrir árin 2026 – 2028:
Grunnforsenda fyrir fjárhagsáætlun 2026-2028 er áætlun um fjárheimildir fyrir árið 2025 að teknu tilliti til framtíðarfjárfestinga, s.s. gatnagerðar, byggingu og rekstri nýs íþróttahúss og leikskóla. Áætlunin tekur mið af kostnaðarverðlagi ársins 2025. Kostnaðarliðir aðrir en laun breytast í takt við spá um breytingu neysluverðsvísitölu. Útsvarstekjur breytast á milli ára í takt við launavísitölu eins og hún er áætluð í Þjóðhagsspá Hagstofu Íslands auk spár um íbúaþróun. Gert er ráð fyrir að launakostnaður breytist í takt við spá um þróun launavísitölu í Þjóðhagsspá Hagstofu Íslands.
Helstu lykiltölur úr rekstri og efnahag árin 2026-2028, samantekið A og B hluti:
- Rekstrarafkoma á tímabilinu verður jákvæð öll árin á bilinu 139,5-191,6mkr. eða uppsafnað á tímabilinu 496,7mkr.
- Veltufé frá rekstri verður á bilinu 219,2-272,3mkr. á ári eða á bilinu 12,7-14,9% af rekstrartekjum, hæst 14,9% árið 2028 og lægst 12,7% árið 2027.
- Veltufjárhlutfall er áætlað 6,03 árið 2026, 2,79 árið 2027 og 3,68 árið 2028.
Skuldahlutfall er áætlað 9,4% árin 2025 og 2026, 9% árið 2027 og 8,9% árið 2028.
Lokaorð:
Fjárhagsáætlunin er í takt og þróun við þær áætlanir sem lagðar hafa verið fram undanfarin ár. Áfram er gert ráð fyrir örum vexti og uppbyggingu samfélagsins í Hvalfjarðarsveit þar sem íbúum fjölgar hratt, tæplega 6% fjölgun síðastliðið ár og ný hús halda áfram að rísa enda hlutfallslega flestar íbúðir í byggingu hér á landsvísu miðað við fjölda fullbúinna íbúða í sveitarfélaginu eða um 20,5%.
Það er gæfa okkar í Hvalfjarðarsveit að geta farið í stórar framkvæmdir líkt og byggingu nýs íþróttahúss og leikskóla án fyrirhugaðrar lántöku og skuldsetningar sveitarfélagsins samhliða því að hlúa áfram að góðri þjónustu við íbúa og viðhalda eignum sem skyldi.
Sveitarstjóri færir starfsfólki á skrifstofu Hvalfjarðarsveitar, forstöðufólki öllu sem og sveitarstjórn þakklæti sitt fyrir þeirra mikilvæga framlag, aðkomu og vinnu við gerð fjárhagsáætlunarinnar.
Hvalfjarðarsveit 28. nóvember 2024
Linda Björk Pálsdóttir, sveitarstjóri
Fjárhagsáætlun Hvalfjarðarsveitar 2025-2028 má sjá hér