Opið hús eldri borgara sem vera átti í félagsheimilinu Miðgarði á morgun, 10. október frestast um einn dag og verður föstudaginn 11. október. Breytingin stafar af vinnu Rarik við dreifikerfið en rafmagnslaust verður á þessu svæði á morgun frá kl. 13 - 17.