Fara í efni

Félagsstarf aldraðra 60 ára og eldri í Hvalfjarðarsveit

Fyrsta opna hús félagsstarfsins verður í félagsheimilinu  Miðgarði fimmtudaginn 12. september nk. kl. 14:00.
 

Opið hús fer fram tvisvar sinnum í mánuði frá september fram í maí í félagsheimilinu Miðgarði á fimmtudögum kl. 14:00 nema annað sé auglýst .
Umsjón með opnu húsi hafa  Kristrún Sigurbjörnsdóttir og Þórey Birna Björnsdóttir.

Kynning á vetrarstarfi.
Upplestur úr bók.
Leikhúsferð- kynning.
Kynning og pöntun á vörum frá Glit, jólavörum og öðrum vörum.
Spjall og kaffiveitingar.
Gripið í spil eða handavinnu ef áhugi er fyrir hendi.
 
Vonum að sem flestir sjái sér fært að mæta.