Fara í efni

Faxaflóahafnir og Silicor semja um lóð og höfn vegna sólarkísilverksmiðju á Grundartanga

Fulltrúar Faxaflóahafna sf. og bandaríska iðnfyrirtækisins Silicor Materials Inc. 

undirrituðu í dag samninga  um lóð, lóðarleigu og afnot af höfn vegna 

fyrirhugaðrar sólarkísilverksmiðju á Grundartanga. 

 

Theresa Jester forstjóri og Gísli Gíslason hafnarstjóri undirrituðu fyrir hönd Silicor 

og Faxaflóahafna. 

 

Mikilvægt skref var stigiðí verkefninu í dag. Fjármögnunarsamningar þess eru á 

lokastigi. Bandaríska fyrirtækiðstefnir að því að hefja framkvæmdir haustið2015 og 

framleiðslu á síðari hluta árs 2017.

 

Áætlaðer aðum 450 manns starfi á Grundartanga á vegum Silicor. Þetta verður

vinnustaður meðhátæknistarfsemi sem krefst fagfólks á mörgum sviðum, ekki síður 

kvenna en karla. 

  •   Sólarkísilverksmiðjan  á Grundartanga  er  meðal stærstu einstakra 

fjárfestingarverkefna á Íslandi, upp á jafnvirði um 122 milljarða króna. 

  •  Þar verður hreinsaður kísilmálmur meðnýrri og umhverfisvænni aðferðsem 

Silicor hefur fengiðeinkaleyfi á. Hreinn kísill er notaður í sólarhlöð. 2

 

Aðstæður og hafnarstarfsemi henta Silicor fullkomlega

 

Gísli  Gíslason  segir að  samningarnir  séu  mikill áfangi fyrir Faxaflóahafnir, 

Grundartangasvæðið  og raunar allt athafna-  og vinnusvæðiðá Suðvestur-  og 

Vesturlandi:

 

„Ég hlýt aðvekja athygli á aðFaxaflóahafnir taka hér þátt í að „landa“ risastóru 

fjárfestingarverkefni sem hafa mun mikil áhrif á atvinnulífið, einkum á Suðvestur- og 

Vesturlandi, og stuðla aðefnahagslegri uppbyggingu á Íslandi yfirleitt. 

 

Auðvitaðeru þetta mikil tíðindi fyrir Faxaflóahafnir, fyrirtæki sem stuðlar reyndar að

því aðfleiri hjól snúist í atvinnulífi landsmanna en fólk flest gerir sér grein fyrir. Þá 

skal líka halda til haga að Grundartangahöfn vann markvisst að því á sínum tíma að

tengja saman Suðvesturhorniðog Vesturland í eitt atvinnusvæði með því að taka þátt 

í aðstofna Spöl og grafa göng undir Hvalfjörð!“

 

Theresa Jester, forstjóri Silicor Materials:

 

„Aðstæður og hafnarstarfsemi Faxaflóahafna sf. á Grundartanga henta starfsemi 

Silicor fullkomlega og þjóna því markmiði fyrirtækisins koma framleiðsluvörum 

sínum fljótt og örugglega til viðskiptavina en halda jafnframt rekstrarkostnaði í 

skefjum.

 

Viðhorfum mjög til  möguleika sem staðsetning Grundartangahafnar skapar á 

heimsvísu, mitt á milli meginlands Evrópu og Norður-Ameríku. Viðhlökkum til þess 

aðhefja rekstur á Íslandi og starfa meðÍslendingum í væntanlegri verksmiðju og við

Grundartangahöfn.“

 

 

Því er viðaðbæta að

•  Skipulagsstofnun komst að þeirri niðurstöðu vorið2013 að „hreinsun kísilmálms til 

framleiðslu á sólarkísli á Grundartanga í Hvalfjarðarsveit sé ekki líkleg til aðhafa í 

för meðsér umtalsverðumhverfisáhrif og skuli  því ekki háðmati á 

umhverfisáhrifum.“

•  Umhverfisráðgjöf Íslands ehf. skilaði sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar greinargerð og 

komst að þeirri niðurstöðu að „í stuttu máli virðist fyrirhuguðverksmiðja Silicor 

Materials á Grundartanga stefna í aðverða umhverfisvænsta stóriðja á Íslandi til 

þessa.“

•  Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar lýsti stuðningi viðáform Silicor í desember 2014 og 

kvað þau vera „í fullu samræmi viðnýsamþykktar skipulagsáætlanir og áherslur sem 

Hvalfjarðarsveit leggur til viðuppbyggingu á iðnaðarsvæðinu.“