Fundir sveitarstjórnar í apríl 2020
25. mars 2020
Á 304. fundi sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar þann 24. mars sl. samþykkti sveitarstjórn með öllum greiddum atkvæðum að fella niður næstu tvo reglubundnu fundi sína þ.e. þann 14. apríl og 28. apríl nk. og í þess stað verði boðað til eins fundar í apríl, þriðjudaginn 21. apríl nk. Ef þörf er talin á verði hins vegar boðað til aukafundar í sveitarstjórn.