Endurskinsmerki að gjöf
12. nóvember 2020
Slysavarnardeildin Líf á Akranesi kom færandi hendi í vikunni og færði öllum börnum í leik- og grunnskóla Hvalfjarðarsveitar endurskinsmerki að gjöf. Þeim er annt um að allir noti endurskinsmerki og sjáist vel í skammdeginu.
Meðfylgjandi mynd var tekin þegar börn í Skýjaborg fengu sín endurskinsmerki.