Breytt tímasetning næsta sveitarstjórnarfundar
13. mars 2025
Vakin er athygli á að næsti fundur sveitarstjórnar sem haldinn verður miðvikudaginn 26. mars nk. og hefjast ætti kl. 15:00, sbr. ákvörðun sveitarstjórnar í upphafi kjörtímabils, verður seinkað og hefst ekki fyrr en kl. 17:00 þann dag.
Ástæðan er aðalfundur Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi sem fram fer á Hótel Hamri, Borgarnesi, miðvikudaginn 26. mars 2025. Sama dag verða einnig aðalfundir Starfsendurhæfingar Vesturlands, Símenntunarmiðstöðvar Vesturlands, Heilbrigðisnefndar Vesturlands og Sorpurðunar Vesturlands. Hluti sveitarstjórnar ásamt sveitarstjóra munu sitja þá fundaröð, fyrsti fundur hefst klukkan 9:30 og sá síðasti klukkan 14:15.