Breytingar í starfi og stofnunum Hvalfjarðarsveitar vikuna 17. – 20. mars
17. mars 2020
Heiðarskóli, grunnskóli:
- Skóladagur er frá kl. 8:20 - 11:40
- Fjarkennsla fyrir nemendur sem eru heima
- Morgunverður fellur niður
- Léttur málsverður milli kl. 10 og 11
- Nemendur hafa með sér vatnsbrúsa
- Nemendur séu klæddir fyrir útivist
- Frístunda- og tómstundaakstur fellur niður
- Frístundastarf fellur niður
Skýjaborg, leikskóli:
- Opnunartími er frá kl. 7:45-14:30
- Morgunmatur og nónhressing fellur niður
- Móttaka barna í forstofu
- Börn eru í útiveru í dagslok
- Takmarka skal umframfatnað barna
- Hólf barna eru tæmd daglega af starfsmönnum
- Leikföng eða hlutir að heiman ekki leyfilegir
Heiðarborg, íþróttahús og sundlaug:
- Íþróttastarf grunnskólabarna fellur niður
- Íþróttasalur lokaður
- Sundlaug er opin almenningi frá kl. 10-13 mánudaga til fimmtudaga
- Síðdegis – og laugardagsopnun sundlaugar er óbreytt ( mán.-fimmt. kl. 16-21 og lau. kl. 10-15)
- Þreksalur er opinn mánudaga – föstudaga frá kl. 8:30-13:30
- Búningsklefar eru eingöngu opnir fyrir sundlaugargesti
- Sökum 2 metra reglunnar eru fjöldatakmarkanir í búningsklefa, sturtur og heitan pott
Heimilisþjónusta:
- Óbreytt fyrirkomulag og þjónusta
Félagsstarf aldraðra:
- Sundleikfimi fellur niður um óákveðinn tíma
- Boðið upp á útiveru og létta göngutúra í stað sundleikfimi
- Opnu húsi í Miðgarði frestað um óákveðinn tíma
Stjórnsýsluhús:
- Óbreyttur opnunartími
- Þeir sem eiga erindi eru hvattir til að nýta síma og/eða tölvupóst eins og kostur er
Félagsheimili:
- Óbreytt rekstrarfyrirkomulag