Breyting á Aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar
11. febrúar 2020
Jarðstrengslagnir Vatnshamarslínu 2, Akraneslínu 2
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti þann 12. mars 2019 tillögu að óverulegri breytingu á Aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2008-2020 samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Breytingin felst í að Vatnshamarslínu 2 er breytt úr loftlínu í jarðstreng á milli mastra 4 og 24.
Breytingin hefur verið send Skipulagsstofnun til staðfestingar. Þeir sem óska nánari upplýsinga geta haft samband við skipulags- og umhverfisfulltrúa Hvalfjarðarsveitar, skipulag@hvalfjardarsveit.is
Sveitarstjóri Hvalfjarðarsveitar