Fara í efni

Auglýst eftir umsóknum í Uppbyggingarsjóð Vesturlands

Veittir verða styrkir í eftirfarandi verkefni: 1) Styrkir til atvinnuþróunar og nýsköpunar 2) Verkefnastyrkir á sviði menningar 3) Stofn- og rekstrarstyrkir menningarmála.

Styrkir til menningarmála er úthlutað einusinni á ári (2 og 3). Upplýsingar veitir Elísabet Haraldsdóttir í síma 433-2312 eða 892-5290, netfang: menning@vesturland.is 

Styrkjum til atvinnuþróunar og nýsköpunar (1) er úthlutað tvisvar á ári, núna og í haust. Upplýsingar veitir Ólafur Sveinsson í síma 433-2312 eða 892-3208, netfang olisv@ssv.is 

FRESTUR TIL AÐ SKILA UMSÓKNUM ER TIL 15. FEBRÚAR 2016

Á heimasíðu Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi www.ssv.is er að finna upplýsingar um umsóknarferli reglur og viðmið varðandi styrkveitingar undir hnappi vinstra megin á síðunni.