Fara í efni

Auglýsing vegna sveitarstjórnarkosninga í Hvalfjarðarsveit 14. maí 2022

Framboðsfrestur rennur út kl. 12 á hádegi föstudaginn 8. apríl 2022.

Framboðslistum og öðrum gögnum skal skila til kjörstjórnar fyrir lok framboðsfrests.

Gögnum má skila til hvaða kjörstjórnarmanns sem er eða til kjörstjórnar, sem verður í Stjórnsýsluhúsinu við Innrimel 3 kl. 11-12 föstudaginn 8. apríl.

Sveitarstjórnarmenn sem hyggjast skorast undan endurkjöri skulu tilkynna þá ákvörðun til kjörstjórnar fyrir lok framboðsfrests.

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla fer fram hjá sýslumönnum.

Nánari upplýsingar og leiðbeiningar er að finna á vefnum www.kosning.is

24. mars 2022, kjörstjórn í Hvalfjarðarsveit,

Guðmundur Ólafsson, Lambhaga 2
Helga Stefanía Magnúsdóttir, Hagamel 11
Jóna Björg Kristinsdóttir, Áshamri