Fara í efni

Auglýsing vegna sveitarstjórnarkosninga

Auglýsing vegna sveitarstjórnarkosninga í Hvalfjarðarsveit 26. maí 2018

 

Framboðsfrestur rennur út kl. 12 á hádegi laugardaginn 5. maí 2018. 

 

Framboðslistum og öðrum gögnum skal skila til kjörstjórnar fyrir lok framboðsfrests. 

 

Gögnum má skila til hvaða kjörstjórnarmanns sem er, eða til kjörstjórnar, sem verður í Stjórnsýsluhúsinu við Innrimel 3 kl. 11-12 laugardaginn 5. maí. 

 

Sveitarstjórnarmenn sem hyggjast skorast undan endurkjöri skulu tilkynna þá ákvörðun til kjörstjórnar fyrir lok framboðsfrests.

 

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla fer fram hjá sýslumönnum.

 

Nánari upplýsingar og leiðbeiningar er að finna á vefnum www.kosning.is

 

 

18. apríl 2018, kjörstjórn í Hvalfjarðarsveit,

Helga Stefanía Magnúsdóttir, Hagamel 11,

Jón Haukur Hauksson, Kalastöðum 1, 

Jóna Björg Kristinsdóttir, Áshamri.