Sveitarfélögin á Vesturlandi óska eftir fundi með forsætisráðherra um neyðarástand í vegamálum á Vesturlandi
20. febrúar 2025
Sveitarfélögin á Vesturlandi og Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi hafa sent forsætisráðherra bréf vegna þess neyðarástands sem hefur verið í vegamálum undanfarið. Í erindinu kemur fram að óskað er eftir fundi sem fyrst með forsætisráðherra og viðkomandi fagráðherrum um skipan viðbragðshóps um aðgerðir til að tryggja öryggi íbúa á Vesturlandi og annarra vegfarenda og ástand veganna skerði ekki atvinnu- og mannlíf á svæðinu.
Erindið til forsætisráðherra má lesa hér: Vesturland erindi til ríkisstjórnar_18022025