Fara í efni

Álagning fasteignagjalda árið 2016

Álagningu fasteignagjalda í Hvalfjarðarsveit fyrir árið 2016 er lokið.

Álagningarseðlar fasteigna eru einungis sendir út til 69 ára og eldri og fyrirtækja.  Aðrir geta nálgast álagningarseðil sinn rafrænt á vefnum www.island.is

1. Velja skal efst til hægri á vefsíðunni: ,,Mínar síður“
2. Til að skrá sig inn skal nota annað hvort rafræn skilríki eða Íslykli.
3. Þegar komið er inn á ,,þína síðu" birtist pósthólf þar sem smellt er á „skjöl frá opinberum aðilum“ en þar birtist álagningarseðil 2016.

Þeir sem óska geta fengið álagningarseðil sendan í tölvupósti eða pósti og er þeim bent á að hafa samband við skrifstofu Hvalfjarðarsveitar í síma 433 8500 eða senda tölvupóst á netfangið kristjana@hvalfjardarsveit.is.

Afsláttur á fasteignaskatti til örorku- og ellilífeyrisþega er tekjutengdur og ekki þarf að sækja um lækkun, gerður er vélrænn samanburður tekna samkvæmt skattframtali 2014.

Örorkulífeyrisþegar þurfa að leggja fram örorkuskírteini.

Skilyrði lækkunar eru að viðkomandi eigi lögheimili í Hvalfjarðarsveit og sé þinglýstur eigandi viðkomandi fasteignar og/eða geti átt rétt á vaxtabótum vegna hennar skv. B-lið 68. gr. laga nr. 90/2003 um tekju- og eignaskatt.

Einungis er veitt lækkun vegna íbúðarhúsnæðis til eigin nota.

Fjármálastjóri Hvalfjarðarsveitar veitir upplýsingar og annast breytingar varðandi álagningu gjalda. Upplýsingar má leita síma 433 8500 eða með tölvupósti á netfangið kristjana@hvalfjardarsveit.is.

Gjalddagar fasteignagjalda umfram 25.000 kr. fyrir árið 2016 eru:
15. febrúar, 15. mars, 15. apríl, 15. maí, 15. júní, 15. júlí og 15. ágúst.
Gjalddagi fasteignagjalda undir 25.000 kr er 15. maí.
Eindagi reiknast 30 dögum eftir gjalddaga.

 

Með góðri kveðju,

Kristjana Helga Ólafsdóttir
Fjármálastjóri Hvalfjarðarsveitar