Fara í efni

Ágæti íbúi/húseigandi í Hvalfjarðarsveit.

Eins og flestum er kunnugt um, er lokið lagningu ljósleiðara í sveitarfélaginu. Næstu vikur fer fram lokaúttekt á verkinu og verið að fara yfir og lagfæra frágang á lagningu hans samkvæmt innkomnum upplýsingum um framkomna ágalla á verkinu.

Því viljum við með bréfi þessu fara fram á við íbúa sveitarfélagsins og aðra, að skoða vel frágang á lagningu ljósleiðarans í landi og umhverfi ykkar, ef þið teljið að eitthvað sé ábótavant hjá ykkur.

Athugasemdum má koma á framfæri við starfsfólk skrifstofu sveitarfélagsins og formann veitunefndar, annað hvort með því að hringja eða senda póst fyrir 22. maí n.k.

 

Hægt er að hringja á skrifstofuna í síma 4338500, netfang hvalfjardarsveit@hvalfjardarsveit.is  eða hafa samband beint við:

Einar Jónsson, sími 4338507 og 8651825, netfang einar@hvalfjardarsveit.is

Stefán Ármannsson, formaður veitunefndar, sími 4338794 og 8975194, netfang stefan@hroar.is.

 

Með kveðju,

Skúli Þórðarson, sveitarstjóri.