Fara í efni

Afrekssjóður Hvalfjarðarsveitar - fyrri úthlutun

Búið er að opna fyrir umsóknir í afrekssjóð Hvalfjarðarsveitar.
Umsóknarfrestur er til 15. apríl nk.

Um er að ræða fyrri úthlutun en úthlutanir úr sjóðnum eru tvisvar á ári, apríl og nóvember ár hvert.

  • Afreksstyrkir eru ætlaðir til þess að styðja við bakið á afreksfólki sem á lögheimili í Hvalfjarðarsveit.
  • Umsækjandi þarf að hafa skarað fram úr og/eða hafa fengið viðurkenningu fyrir störf/afrek sín á sviði íþrótta.
  • Afrekssjóður veitir styrki vegna þátttöku í fjölþjóðlegum mótum, sýningum erlendis og ferðastyrk vegna íþrótta.

Eftirfarandi gögn þurfa að fylgja umsókn:

  • Kynning á umsækjanda.
  • Yfirlit og staðfesting á afrekum/viðurkenningum.
  • Staðfesting á þátttöku.
  • Kvittanir vegna útlagðs kostnaðar.

Reglur sjóðsins er að finna á heimasíðu Hvalfjarðarsveitar
Umsóknareyðublað má nálgast á Þjónustugátt Hvalfjarðarsveitar.