Áfangastaðaáætlun 2021-2023
Nú stendur yfir vinna við aðgerðaáætlun Áfangastaðaáætlunnar Vesturlands 2021 - 2023.
Af því tilefni verður rafræn netkynning á verkefninu þar sem Áfangastaðaáætlun Vesturlands er kynnt. Kynningin verður milli 16:30 – 17:30 í dag, fimmtudaginn 12. nóvember á síðu SSV á Facebook. Sagt verður frá þeim verkefnum sem unnið hefur verið að síðastliðin ár samkvæmt aðgerðaráætlun Áfangastaðaáætlunar Vesturlands 2018 -2020.
Í kjölfar fjarkynningarinnar verður opnað fyrir leiðbeinandi kosningu þar sem íbúar geta gefið leiðbeinandi álit á forgangsröðun verkefna varðandi uppbyggingu innviða á sínu svæði innan Vesturlands. Með þessu móti geta íbúar Vesturlands tekið virkan þátt í að móta verkefnaáætlun næstu þriggja ára. Hægt verður að nálgast þá kosingu á vef SSV að lokinni fjarkynningunni og nánari upplýsingar um það munu koma fram í fjarkynningunni.
Vefslóð viðburðarins á Facebook má nálgast hér: https://www.facebook.com/events/1004902053317221/?acontext=%7B%22event_action_history%22%3A[%7B%22mechanism%22%3A%22search_results%22%2C%22surface%22%3A%22search%22%7D]%7D