17. júní í Hvalfjarðarsveit
16. júní 2022
Hátíðardagskrá 17. júni 2022 verður haldin í félagsheimilinu Miðgarði og hefst kl. 12:00. (athugið breytta staðsetningu).
Þar verður boðið upp á fjölbreytta fjölskyldudagskrá. Ræðumaður dagsins er Ásgeir Kristinsson frá Leirá, hátíðarsöngur í höndum Kórs Saurbæjarprestakalls og að venju ávarpar Fjallkonan gesti. Leikhópurinn Lotta kemur í heimsókn og einnig Katrín Halldóra Sigurðardóttir, leik- og söngkona. Andlitsmálun og hoppukastalar verða í boði og félagar úr Hestamannafélaginu Dreyra teyma undir börnum á öllum aldri. Kaffiveitingar og grillaðar pylsur í boði.