Fara í efni

100% starf skipulags- og byggingarfulltrúa laust til umsóknar

Laust er til umsóknar starf skipulags- og byggingarfulltrúa Hvalfjarðarsveitar. Um er að ræða 100% starf innan stjórnsýslu sveitarfélagsins. Leitað er að metnaðarfullum aðila til að stýra fjölbreyttum verkefnum í skipulags- og byggingarmálum sveitarfélagsins.

Helstu verkefni og ábyrgðarsvið:
Skipulags- og byggingarfulltrúi hefur yfirumsjón með skipulags- og byggingarmálum sveitarfélagsins, þjónustar íbúa Hvalfjarðarsveitar á því málefnasviði og er ráðgefandi fyrir sveitarstjórn og umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd og vinnur skv. samþykktum þeirra. Eftirfarandi heyrir m.a. undir verkefna- og ábyrgðarsvið skipulags- og byggingarfulltrúa Hvalfjarðarsveitar:

  • Yfirumsjón, framkvæmd og málsmeðferð skipulags- og byggingarmála í sveitarfélaginu.
  • Leyfisveitingar, eftirlit, umsagnir, skráning mannvirkja og úttektir ásamt staðfestingu eignaskiptayfirlýsinga.
  • Útgáfa framkvæmdaleyfa og eftirlit með að framkvæmdir séu í samræmi við skipulag og útgefin leyfi.
  • Umsýsla vegna stofnun lóða í sveitarfélaginu ásamt umsjón með lóðaúthlutunum.
  • Skipulagsgerð, undirbúningur, úrvinnsla og verkstjórn.
  • Undirbúningur nefndarfunda, lögformleg afgreiðsla erinda og eftirfylgni mála.
  • Gerð starfs- rekstrar-, og framkvæmdaáætlana fyrir þá málaflokka sem undir hann heyra.

Skipulags- og byggingarfulltrúi ber ábyrgð á meðferð, skráningu og varðveislu gagna, úrvinnslu og upplýsingagjöf, stefnumótun, þróun verklags og þjónustugæða. Skipulags- og byggingarfulltrúi er starfsmaður umhverfis-, skipulags,- náttúruverndar- og landbúnaðarnefndar.

Almennt stjórnunarsvið:
Skipulags- og byggingarfulltrúi starfar og stjórnar í samræmi við lög og reglugerðir sem gilda um skipulags- og byggingarmál sveitarfélaga. Jafnframt eftir lögum er varða opinbera þjónustu og stjórnsýslu, samkvæmt markmiðum sveitarstjórnar og í samræmi við fjárhagsáætlun Hvalfjarðarsveitar á hverjum tíma.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun á sviði byggingarmála sbr. 3. mgr. 8. gr. mannvirkjalaga nr. 160/2010 og 5. mgr. 7. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
  • Þekking og reynsla á sviði skipulags- og byggingarmála.
  • Reynsla af notkun One System, Navision og Autodesk forrita (autocad/civil o.þ.h.) er kostur.
  • Færni í mannlegum samskiptum auk forystu- og skipulagshæfileika.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.

Kjör:
Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningum viðkomandi stéttarfélags og Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Umsóknarfrestur er til og með 4. febrúar 2024. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Með umsókn óskast starfsferilsskrá og kynningarbréf með frekari upplýsingum, m.a. um menntun og fyrri reynslu.
Umsóknir skal senda á skrifstofu Hvalfjarðarsveitar, Innrimel 3, 301 Akranes eða á netfangið hvalfjardarsveit@hvalfjardarsveit.is
Nánari upplýsingar um starfið veitir Linda Björk Pálsdóttir sveitarstjóri í síma 433-8500 og á netfanginu linda@hvalfjardarsveit.is

Hvalfjarðarsveit er öflugt sveitarfélag með um 770 íbúa. Náttúrufegurð er mikil og möguleikar til að njóta fjölbreyttrar útiveru eru óþrjótandi. Hvalfjarðarsveit er dreifbýlt sveitarfélag með litlum íbúakjörnum. Þar er nægt lóðaframboð, fjölbreytt atvinnutækifæri, öflugur landbúnaður, vaxandi ferðaþjónusta og metnaðarfullt skólastarf.

Mikil uppbygging hefur átt sér stað á atvinnusvæðinu við Grundartanga með fjölbreyttum fyrirtækjum. Hvalfjarðarsveit er í nálægð við þéttbýli og í góðu samstarfi við nágrannasveitarfélög. Nánari upplýsingar má finna á www.hvalfjardarsveit.is