Ungmennaráð Hvalfjarðarsveitar
Dagskrá
1.Ungmennaráð Vesturlands
2304031
Ungmennaráð Vesturlands.
Ungmennaráð Hvalfjarðarsveitar tilnefnir Mikael Bjarka Ómarsson í Ungmennaráð Vesturlands og vísar tilnefningu til afgreiðslu sveitarstjórnar.
2.Lógó Leik- og grunnskóla Hvalfjarðarsveitar
2203037
Kennimerki/lógó Leik- og grunnskóla Hvalfjarðarsveitar er vísað til Ungmennaráðs til kynningar og umsagnar af fræðslunefnd.
Ungmennaráð lýsir ánægju sinni með nýja kennimerkið, það er myndrænt fyrir leik- og grunnskóla Hvalfjarðarsveitar.
3.Barna- og ungmennaþing Hvalfjarðarsveitar - undirbúningur
2304030
Skoða hvernig skipulagið var á barna- og unglingaþingi í Mosfellsbæ.
Félagsmálastjóri fór yfir skipulag og dagskrá barna- og ungmennaþings Mosfellsbæjar sem fram fór í apríl sl. Barna- og ungmennaþing er hluti af verkefninu barnvænt sveitarfélag.
4.Íþrótta- og æskulýðsmál
1911030
Kynning á stöðu barna og unglinga í íþrótta- og æskulýðsstarfi í Hvalfjarðarsveit.
Rætt var um markaðssetningu og auglýsingar á íþrótta- og tómstundastyrkjum Hvalfjarðarsveitar. Að mati ungmennaráðs þarf að auglýsa betur og með hnitmiðaðri hætti eftir þeim hópi sem við á og hafa fjölbreyttar auglýsingar t.d. myndrænar og rafrænar.
5.Norrænn ungmennamánuður og handbók Unicef fyrir ungmennaráð
2304021
Kynning á ungmennamánuði og handbók ungmennaráðs sem Unicef gaf út.
Lagt fram og farið var yfir handbók frá UNICEF.
Fundi slitið - kl. 17:30.
Félagsmálastjóri sat undir lið 3.