Fara í efni

Sveitarstjórn

152. fundur 09. júlí 2013 kl. 16:00 - 16:00 í stjórnsýsluhúsinu Innrimel 3
Nefndarmenn
  • Sigurður Sverrir Jónsson oddviti
  • Ása Helgadóttir varaoddviti
  • Sævar Ari Finnbogason ritari
  • Hallfreður Vilhjálmsson aðalmaður
  • Arnheiður Hjörleifsdóttir vararitari
  • Halldóra Halla Jónsdóttir aðalmaður
  • Björgvin Helgason 1. varamaður
Fundargerð ritaði: Laufey Jóhannsdóttir sveitarstjóri
Dagskrá
Sigurður Sverrir Jónsson oddviti, setti fundinn og bauð menn velkomna til fundar og var síðan gengið til áður boðaðrar dagskrár. SSJ benti á að misritun er í fundarboði liður 4 var til umfjöllunar og afgreiddur á síðasta fundi.
Að auki sat sveitarstjóri fundinn og ritaði fundargerð.

1.Sveitarstjórn - 151

1306002F

Fundargerðin framlögð

2.36. fundur fjölskyldunefndar

1307004

Fundargerðin framlögð

3.Umhverfis- skipulags- og náttúruverndarnefnd - 26

1307001F

AH ræddi fundartíma og fundarboðun. Ræddi verkefni á vegum sveitarfélagsins. SSJ rædi fundarboðun. LJ svaraði fram komnum fyrirspurnum. SAF ræddi fundarboðun og fundartíma USN nefndar. Fundargerðin framlögð

4.Glammastaðir ehf.kt: 480113-0470.

1303047

Afgreiðsla USN nefndar 5. júlí 2013. Nefndin samþykkir framlögð gögn og erindi til Úrskurðarnefndar.
SAF lagði til að sveitarstjórn samþykki afgreiðslu USN nefndar varðandi beiðni Úrskurðarnefndrar umhverfis- og auðlindamála. HV ræddi landamerki og skiptingu lands. SAF svaraði fram komnum fyrirspurnum. Tillagan samþykkt 6-0. HV situr hjá við afgreiðsluna.

5.Örbylgjuloftnet fyrir Leik- og grunnskóla Hvalfjarðarsveitar

1307012

Erindi frá Jóni Rúnari Hilmarssyni skólastjóra dagsett 4. júlí 2013
LJ ræddi erindið og lagði til að samþykkja aukafjárveitingu allt að 500 þús. SAF ræddi að tengingar innanhúss verði varanlegar. AH ræddi erindið og fjárhagsáætlun verkefnisins. HV spurðist fyrir varðandi öryggi merkisins. SAF svaraði fram komnum fyrirspurnum.
Sveitarstjórn samþykkir viðauka við fjárhagsáætlun ársins að fjárhæð sem nemur allt að 500 þús. kr samkvæmt 1. málsl. 2. mgr. 63. gr. stjórnsýslulaga nr. 138/2011. Kostnaðarauka skal mætt með fjárveitingu af fjárhagsliðnum óviss útgjöld 5971-2185. Tillagan samþykkt með 4 atkvæðum SSJ, ÁH, HHJ SAF. HV, AH og BH sitja hjá við afgreiðsluna

6.Styrkir vegna ferða ungmenna í íþrótta og tómstundastarfi.

1307013

Erindi frá formanni fræðslu- og skólanefndar fyrir hönd nefndarinnar dags. 04.júli 2013
ÁH fór yfir erindið. Nefndin fékk beiðni frá fjórum ungmennum og vantaði nafn Silvíu Mistar í bréf til sveitarstjórnar. Nefndin hefur samþykkt erindið á milli funda. Lagt er til að samþykkja ferðastyrki kr. 10 þúsund til ungmennanna. HV ræddi erindið og lagði til að hækka upphæðina upp í 20 þúsund kr. SSJ ræddi erindið og fyrirliggjandi reglur um styrkveitingar. ÁH ræddi erindið og óskaði eftir að fá reglurnar til endurskoðunar á næsta fundi fræðslu- og skólanefndar. SAF ræddi erindið. HV ræddi fram komnar hugmyndir og dregur tillögu sína til baka. SSJ svaraði fram komnum athugasemdum. Tillaga um 10 þús kr. styrk á einstakling. Tillagan samþykkt samhljóða. Tillaga um að fræðslu- og skólanefnd endurskoði viðmiðunarreglur um ferðastyrki á næsta fundi nefndarinnar er samþykkt samhljóða 7-0

7.Aðstaða fyrir forskólakennslu leikskólabarna

1307014

Erindi þessa bréfs er að kynna fyrir sveitarstjórn fyrirhugaða forskólakennslu í tónlist fyrir leikskólabörn. Erindi frá Jóni Rúnari Hilmarssyni skólastjóra dagsett 4. júlí 2013
SSJ ræddi erindið. AH ræddi erindið og fagnaði erindinu og styður fram komna hugmynd. Sveitarstjórn samþykkir erindið 7-0

8.Hafnar og rekstrarsvið Siglingarstofnunar sameinast Vegagerðinni

1307002

Erindi frá Vegagerðinni dagsett 26. júní 2013
Erindið framlagt

9.Arðgreiðsla fyrir rekstrarárið 2012

1307001

Erindi frá Speli dagsett 27. júní. Áður vísað til fjármálastjóra og aðalbókara
Erindið framlagt

10.Beiðni um lykiltölur úr aðalskipulagi

1307003

Erindi frá Skipulagsstofnun dagsett 13. júní. Áður sent skipulagsfulltrúa.
Erindið framlagt

11.Ársreikningur 2012- Vatnsveitufélag Hvalfjarðarsveitar

1307005

Samþykktur á aðalfundi 26. júní 2013. Liggur frami á fundinum ásamt ársskýrslu
Erindið framlagt

12.108. 109. og 110. fundir stjórna Faxaflóahafna.

1306039

Fundargerðirnar eru framlagðar

13.807. fundur Sambands íslenskra sveitarfélaga

1307010

Fundargerð 807. fundar frá 28. júní 2013 liggur frami á fundinum. Áður send sveitarstjórn. Aðgengileg á http://www.samband.is/um-okkur/fundargerdir-stjornar/searchmeetings.aspx og
Fundargerðin framlögð

Fundi slitið - kl. 16:00.

Efni síðunnar