Fara í efni

Fræðslunefnd

59. fundur 20. ágúst 2024 kl. 16:30 - 17:45 í stjórnsýsluhúsinu Innrimel 3
Nefndarmenn
  • Elín Ósk Gunnarsdóttir varaformaður
  • Berglind Ósk Jóhannesdóttir ritari
  • Helgi Halldórsson aðalmaður
  • Helga Harðardóttir aðalmaður
  • Þórdís Þórisdóttir áheyrnafulltrúi
  • Sigurbjörg Friðriksdóttir áheyrnafulltrúi
  • Fanney Rún Ágústsdóttir áheyrnafulltrúi
  • Guðbjartur Þór Stefánsson 1. varamaður
  • Halldóra Andrésdóttir áheyrnafulltrúi
Starfsmenn
  • Sigríður Lára Guðmundsdóttir embættismaður
  • Ása Líndal Hinriksdóttir embættismaður
Fundargerð ritaði: Ása Líndal Hinriksdóttir Frístunda- og menningarfulltrúi
Dagskrá
Inga María Sigurðardóttir og Eyrún Jóna Reynisdóttir boðuðu forföll.

1.Miðstöð skólaþróunar-stjórnun-kennsluráðgjöf og starfsþróun

2208034

Áætlun vegna verkefna haustið 2024.
Framlögð verkefnaáætlun frá MSHA fyrir haustið 2024.
Á grundvelli hennar óskar fræðslunefnd eftir viðbótafjárveitingu að fjárhæð 1.071.000 kr. til þess að unnt sé að vinna áfram til áramóta samkvæmt áætluninni.

2.Starfsáætlun Heiðarskóla 2024-2025-drög.

2408012

Starfsáætlun Heiðarskóla 2024-2025-drög.
Lagt fram til kynningar.

3.Starfsáætlun Skýjaborgar 2024-2025

2408011

Starfsáætlun Skýjaborgar 2024-2025.
Lagt fram til kynningar.

4.Heiðarskóli - yfirferð fyrir haustið 2024

2408015

Taka stöðuna á fjölda barna og verkefni vetrarins,
Lagt fram til kynningar. Skólastjóri Heiðarskóla fór yfir núverandi upplýsingar og nemendafjölda.

5.Akstursáætlun Heiðarskóla

2408013

Akstursáætlun 2024-2025.
Akstursáætlun lögð fram til kynningar.

6.Ábyrgð og hlutverk sveitarfélaga vegna bils milli fæðingarorlofs og inntöku barna í leikskóla

2406021

Erindi frá Jafnréttisstofu.
Lagt fram til kynningar bréf frá Jafnréttisstofu þar sem vakin er athygli á ábyrgð og hlutverki sveitarfélaga vegna bils milli fæðingarorlofs og inntöku barna í leikskóla.

Í Hvalfjarðarsveit er starfræktur leikskólinn Skýjaborg, samkvæmt upplýsingum frá leikskólanum er meðalaldur barna við upphaf leikskóladvalar 14,35 mánaða síðustu fjögur ár.Biðlisti barna sem flytjast í sveitarfélagið hefur undantekningalaust ekki verið langur og hægt hefur verið að uppfylla óskir flestra foreldra um leikskóladvöl.
Hvalfjarðarsveit hefur lagt áherslu á að mæta foreldrum barna eftir að fæðingarorlofi lýkur og taka inn börn á leikskóla um 12 mánaða aldur.

Fundi slitið - kl. 17:45.

Efni síðunnar