Fræðslunefnd
Dagskrá
Guðlaug Ásmundsdóttir boðaði forföll.
1.Skóladagatal Skýjaborgar 2023-2024
2302016
Erindinu frestað á síðasta fræðslunefndarfundi.
Fræðslunefnd samþykkir skóladagatal Skýjaborgar fyrir skólaárið 2023-2024.
2.Skóladagatal Heiðarskóla 2023-2024
2302018
Erindinu frestað á síðasta fræðslunefndarfundi.
Fræðslunefnd samþykkir skóladagatal Heiðarskóla fyrir skólaárið 2023-2024.
3.Trúnaðarmál fræðslunefndar
2108003
Trúnaðarmál 2201002.
Ritað í trúnaðarbók.
4.Frístundastefna
2204059
Frístundastefna Hvalfjarðarsveitar lögð fram til samþykktar.
Fræðslunefnd samþykkir frístundastefnu Hvalfjarðarsveitar með breytingartillögum sem fram komu á fundinum. Nefndin þakkar stýrihópi um mótun frístundastefnu fyrir vel unnin störf.
Nefndin leggur til við sveitarstjórn að skoðað verði af fullri alvöru að ráða til starfa tómstunda- og félagsmálafræðing eða aðila með sambærilega háskólamenntun til að efla enn frekar faglegt frístundastarf í sveitarfélaginu.

5.SumarGaman 2023 (Vor- og haust frístund)
2301024
Skipulag og starfsmannahald í SumarGaman 2023.
Skólastjóri Heiðarskóla kynnti drög að starfsmannahaldi fyrir vor- og haustfrístundina SumarGaman 2023.
6.Samstarf við Hvalfjarðarsveit
2211025
Fræðsluerindi frá ADHD samtökunum.
Bókun fjölskyldu- og frístundanefnd 2. mars 2023 lögð fram til kynningar.
„ADHD samtökin verða með fræðsluerindi fyrir starfsfólk leik- og grunnskólans í Hvalfjarðarsveit 13. apríl nk. Í framhaldi af því erindi verður fræðsluerindi fyrir foreldra barna í Hvalfjarðarsveit“.
Fræðslunefnd fagnar framtaki fjölskyldu- og frístundanefndar og hvetur foreldra til að sækja fræðlsuerindið.

7.Barnvæn sveitarfélög-Innleiðing Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna
2002048
Samþykkt sveitarstjórnar lögð fram.
Bókun sveitarstjórnar frá 8. mars 2023 lögð fram til kynningar.
“Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að taka þátt í verkefninu "Barnvænt sveitarfélag" og felur sveitarstjóra að undirrita samning við UNICEF á Íslandi og Félagsmálaráðuneytið. Sveitarstjórn tilnefnir félagsmálastjóra sem umsjónarmann verkefnisins auk þess sem samþykkt er að unnið verði erindisbréf fyrir stýrihóp verkefnisins og það verði lagt fyrir á næsta fundi sveitarstjórnar.
Sveitarstjórn samþykkir vegna þessa viðauka nr. 3 við fjárhagsáætlun ársins 2023 vegna þátttöku í verkefninu Barnvænt sveitarfélag. Kostnaðurinn færist á deild 02030 Barnvænt sveitarfélag og bókhaldslykla 1610, nefndarlaun, 1810 og 1820, launatengd gjöld, lykil 4980, aðkeypt þjónusta og 5946, framlög til félagasamtaka. Auknum útgjöldum verður mætt með lækkun á liðnum óviss útgjöld, deild 21085 og lykli 5971."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Fundi slitið - kl. 19:00.