Fræðslunefnd
Dagskrá
Sigurbjörg Friðriksdóttir og Sólrún Jörgensdóttir boðuðu forföll.
1.Beiðni um undirbúningstíma.
2201032
Útfærslur á undirbúningstíma leiðbeinenda.
Fræðslunefnd leggur til við sveitarstjórn að veita leikskólastjóra heimild til að bæta við 0,15 stöðugildum frá 1. maí - 31. desember 2022 til að mæta undirbúningstímum leiðbeinenda í Skýjaborg. Leikskólastjóri getur þá ráðstafað þeim tímum eins og hann telur gagnast starfsemi leikskólans sem best hverju sinni. Frekari útfærslu eða aukningu undirbúningstíma fyrir leiðbeinendur leggur fræðslunefnd til að verði endurskoðað við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2023.
2.Skóladagatali Heiðarskóla - drög 2022 - 2023
2203031
Fara yfir skóladagatal Heiðarskóla 2022-2023.
Fræðslunefnd samþykkir skóladagatal Heiðarskóla fyrir skólaárið 2022-2023.
3.Skóladagatal Skýjaborgar -drög 2022
2203038
Fara yfir skóladagatal Skýjaborgar 2022-2023.
Fræðslunefnd fellst á beiðni leikskólastjóra um einn viðbótar skipulagsdag og samþykkir skóladagatal Skýjaborgar fyrir skólaárið 2022-2023.
4.Skólapúlsinn Leik- og grunnskóla Hvalfjarðarsveitar
2203034
Fara yfir niðurstöður foreldrakönnunar árið 2022.
Fræðslunefnd felur skólastjórn að vinna aðgerðaráætlun í tengslum við niðurstöður foreldrakannana 2022 og kynna fyrstu drög á næsta fundi nefndarinnar.
5.Vor - og haustfrístund 2022
2203040
Fara yfir skipulagið á vor - og haustfrístundinni.
Endanlegt skipulag og gjaldskrá verður lögð fyrir nefndina á næsta fundi.
6.Lógó Leik- og grunnskóla Hvalfjarðarsveitar
2203037
Skoða kostnað við hönnun og frágang af lógói.
Fræðslunefnd lýsir áhuga á að útbúið verði lógó fyrir Leik- og grunnskóla Hvalfjarðarsveitar. Ýmsar hugmyndir ræddar um útfærslu og frístunda- og menningarfulltrúa, skólastjórn og formanni falið að vinna málið áfram.
7.Reglur um samskipti Leik- og grunnskóla Hvalfjarðarsveitar við trúar- og lífsskoðunarfélög.
2203030
Kynning á reglum við trúar- og lífsskonunarfélög í skólanámskrá 2021.
Fræðslunefnd samþykkir áorðnar breytingar á kafla skólanámskrá 2021 um reglur um samskipti Leik- og grunnskóla Hvalfjarðarsveitar við trúar- og lífsskoðunarfélög.
8.Niðurstöður vegna mönnunarviðmiða og innritunaraldurs í leikskóla
2203023
Fara yfir helstu niðurstöður kannannana um viðmið vegna mönnunar og leikskólum og innritunaraldri.
Lagt fram til kynningar.
9.Leikskólahúsnæði - þarfagreining 2022
2202016
Fara yfir stöðu mála.
Formaður fór yfir vinnu starfshóps ásamt verk- og tímaáætlun.
10.Mat á áhrifum ákvarðana sveitarfélaga á börn og réttur barna til þáttöku og áhrifa.
2201060
Erindi frá Umboðsmanni barna, þar sem öll sveitarfélög eru hvött til að virða rétt barna til þátttöku og áhrifa.
Lagt fram til kynningar.
Fundi slitið - kl. 19:00.