Fræðslu- og skólanefnd 2014-2018
Dagskrá
Auk þess sat fundinn Einar S. Sigurðsson sem fulltrúi kennara og Guðlaug Ásmundsdóttir fulltrúi foreldra.
1.Frístund (lengd viðvera) - Heiðarskóli.
1606048
Nefndin vil lýsa ánægju sinni yfir vel heppnað frístundastarf síðastliðinn vetur.
Frístundafulltrúa er falið að gera breytingar á reglum og gjaldskrá fyrir frístund í samræmi við umræður á fundinum. Nefndin leggur til við sveitastjórn að samþykkja breyttar reglur við frístund.
Frístundafulltrúa er falið að gera breytingar á reglum og gjaldskrá fyrir frístund í samræmi við umræður á fundinum. Nefndin leggur til við sveitastjórn að samþykkja breyttar reglur við frístund.
2.Tímamagn og aukin starfsmannaþörf í Heiðarskóla 2018-2019
1805012
Erindi frá skólastjóra Heiðarskóla
Nefndin beinir því til skólastjóra að framvegis verði viðmið um tímaúthlutun til kennslu unnið í samstarfi við sveitastjóra. Jafnframt verði drög að viðmiði um tímaúthlutun til kennslu lagt fyrir fræðslu- og skólanefnd í apríl mánuði ár hvert.
Nefndin felst á tillögu skólastjóra um heildarkennslustundafjölda fyrir skólaárið 2018-2019.
Nefndin leggur til við skólastjóra að nýta tímaúthlutun sem best.
Nefndin felst á tillögu skólastjóra um heildarkennslustundafjölda fyrir skólaárið 2018-2019.
Nefndin leggur til við skólastjóra að nýta tímaúthlutun sem best.
3.Bætt starfsumhverfi í Skýjaborg
1805015
Nefndin leggur til við sveitastjórn að samþykkja erindi leikskólastjóra um fjölgun starfsfólks með 5-6 ára barna úr 0,8 í 1 og 4-5 ára barna úr 1 í 1,1.
Nefndin leggur til við sveitastjórn að samþykkja erindi leikskólastjóra um aukin undirbúningstíma leikskólakennara úr 4 í 5 og deildastjóra úr 5 í 7.
Tillögurnar taki gildi frá og með 1. ágúst 2018
Nefndin leggur til við sveitastjórn að samþykkja erindi leikskólastjóra um aukin undirbúningstíma leikskólakennara úr 4 í 5 og deildastjóra úr 5 í 7.
Tillögurnar taki gildi frá og með 1. ágúst 2018
4.Stytting vinnuvikunnar
1805019
Nefndin leggur til við sveitastjórn um að samþykkja erindi skólastjórnar um styttingu vinnuvikunnar sem tilraunaverkefni til eins árs í leikskólanum Skýjaborg.
Megintilgangur verkefnisins er einkum að fjölga leikskólakennurum í Skýjaborg.
Megintilgangur verkefnisins er einkum að fjölga leikskólakennurum í Skýjaborg.
5.Ungmennaráð
1805029
Nefndin samþykkir framlagðar tillögur starfsreglur ungmennaráðs Hvalfjarðarsveitar.
6.Móttökuáætlun fyrir nemendur með annað tungumál en íslensku í Heiðarskóla
1805014
Lagt fram til kynningar
7.Móttökuáætlun fyrir nemendur með sérþarfir í Heiðarskóla
1805013
Lagt fram til kynningar.
8.Umbótaáætlun í kjölfar ytra mats í Heiðarskóla Hvalfjarðarsveit
1805016
Nefndin samþykkir umbótaáætlunina.
9.Betri skólabragur
1805030
Þemaverkefni í Heiðarskóla, apríl 2018
SLG greindi nefndinni frá hvernig til gekk með þemaverkefnið Betri skólabragur sem fór fram í Heiðarskóla í apríl sl.
10.Skólapúlsinn
1805031
SLG greindi frá niðurstöðum Skólapúls í Heiðarskóla sem tekin var í apríl sl.
Fundi slitið - kl. 16:15.