Fræðslu- og skólanefnd 2014-2018
Dagskrá
1.Tillaga-Stjórnskipulag Leik- og grunnskóla.
1702019
Nefndin ákvað að fresta afgreiðslu málsins til 2. mars 2017. Ástæða frestunar er að nefndin ætlar sér lengri tíma til úrvinnslu umsagna sem borist hafa. Nefndin telur rétt að veita hagsmunaaðilum lengri frest til að senda inn álit, til hádegis þriðjudaginn 28. feb.2017.
2.Notkun spjaldtölva í Heiðarskóla - samantekt.
1612001
SLG kynnti markmið og stefnu varðandi notkun spjaldtölva í Heiðarskóla. Nefndin samþykkir stefnuna.
3.Umgengnisreglur í Heiðarborg.
1702033
Nefndin frestar afgreiðslu þar til að ráðningu nýs frístundafulltrúa er lokið.
4.Nemendaspjaldskrá.
1702036
Meðfylgjandi er yfirlit yfir börn sem fæddust árið 2011 og skráð voru til heimilis í sveitarfélaginu þann 1. desember 2016, en þau hefja skólagöngu næsta haust.
Lagt fram til kynningar.
5.Vegvísir.
1702037
SLG kynnti fyrirhugaða vinnu vegna bókunar 1 í kjarasamningi milli Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags grunnskólakennara. Nefndin þakkar kynninguna og óskar eftir að fylgjast með framgangi vinnunnar.
Fundi slitið - kl. 16:15.