Fræðslu- og skólanefnd 2014-2018
Dagskrá
1.Vinnuskóli 2015
1508025
Ólafur Melsted skipulags- og umhverfisfulltrúi sagði frá vinnu vinnuskólans síðastliðið sumar.
2.Forvarnarstefna
1508009
Afgreiðslu máls frestað. Formanni falið að koma athugasemdum til félagsmálastjóra.
3.Starfsáætlun Skýjaborgar 2015-2016.
1508018
Nefndin samþykkir starfsáætlun Skýjaborgar 2015-2016.
4.Skólanámskrá leik og grunnskóla
1506046
Nefndin samþykkir skólanámskrá leik- og grunnskóla Hvalfjarðarsveitar. Nefndin vill hrósa þeim sem komu að vinnu námskrárinnar sem er faglega unnin með aðkomu allra hagsmunaaðila.
5.Fundargerð foreldrafélagsins
1509036
Guðrún Dadda og Elín Ósk kynntu fundagerðina.
6.Trúnaðarmál
1503004
Mál fært í trúnaðarbók.
7.Foreldrasáttmáli-Heimili og skóli
1509041
Nefndin tekur vel í erindið um foreldrasáttmálann og hvetur foreldrafélagið til að sækja um í styrktarsjóð Hvalfjarðarsveitar til að fjármagna verkefnið.
Fundi slitið - kl. 16:15.