Umhverfis- og náttúruverndarnefnd 2006-2011
Arnheiður, Gauti, Petrína, Daniella, Jón Valgeir og Jóhanna
Aðeins eitt mál á dagskrá – Staðardagskrá 21 – Fundurinn var vinnufundur og framhald af síðasta fundi.
Haldið var áfram að fara í gegnum þau atriði Staðardagskrár sem enn átti eftir að vinna en þau voru misvel forunnin.
Gert var fundarhlé í stundarfjórðung og borðaður kvöldverður í boði Daniellu á Eysti-Leirárgörðum.
Vinnu var lokið og allir málaflokkar afgreiddir klukkan 22:00 og var þá fundi slitið