Sveitarstjórn
Björgvin Helgason oddviti, Arnheiður Hjörleifsdóttir varaoddviti, Hjördís Stefánsdóttir
ritari, Jónella Sigurjónsdóttir vararitari, Stefán Ármannsson aðalmaður, Daníel Ottesen
aðalmaður og Ólafur Ingi Jóhannesson 1. varamaður.
Skúli Þórðarson sveitarstjóri, ritaði fundargerð.
Björgvin Helgason, oddviti setti fundinn og bauð sveitarstjórnarmenn velkomna til
fundar og síðan var gengið til áður boðaðrar dagskrár.
Ása Helgadóttir boðaði forföll.
1. 1507004F - Sveitarstjórn - 200
Fundargerð framlögð.
2. 1508001 - Breyting á rekstri Kratusar, Grundartanga. Beiðni um
umsögn.
Erindi frá Skipulagsstofnun, dagsett 28. júlí 2015.
Sveitarstjórn samþykkir að vísa erindinu til umsagnar USN-nefndar.
Samþykkt samhljóða með 7 atkvæðum.
3. 1303047 - Glammastaðir - Landamerki - Landsskipti
Erindi frá Land Lögmönnum, dagsett 6. júlí 2015.
Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að hafa samband við lögmann
sveitarfélagsins í þessu máli en óskað hefur verið álits hans á erindinu.
Samþykkt samhljóða með 7 atkvæðum.
4. 1508002 - Endurnýjun starfsleyfis fyrir alifuglabúið Fögrubrekku.
Erindi frá Heilbrigðiseftirliti Vesturlands.
Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við útgáfu starfsleyfisins en gildistími
þess er til og með 31. desember nk.
Samþykkt samhljóða með 7 atkvæðum.
5. 1508005 - Byggðasafnið í Görðum - skipulagsskrá.
Til samþykktar frá Akraneskaupstað.
Sveitarstjórn samþykkir framlagða skipulagsskrá og felur sveitarstjóra
undirritun hennar.
Samþykkt samhljóða með 7 atkvæðum.
6. 1506041 - Reglur um fjárhagsáætlunarferli Hvalfjarðarsveitar.
Til samþykktar.
Sveitarstjórn samþykkir framlagðar reglur um fjárhagsáætlunarferli
Hvalfjarðarsveitar.
Jafnframt samþykkir sveitarstjórn að reglur þessar verði teknar til
endurskoðunar innan tveggja ára frá samþykkt þeirra.
Samþykkt samhljóða með 7 atkvæðum.
7. 1506011 - Menningarmál - umsögn um tillögur.
Svör frá Akraneskaupstað varðandi umsögn frá Hvalfjarðarsveit.
Bréf Akraneskaupstaðar lagt fram til kynningar.
8. 1508003 - 127. fundur Heilbrigðisnefndar Vesturlands.
Fundargerð lögð fram til kynningar.
Fleira gerðist ekki. Fundargerðin upp lesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 16:15 .