Sveitarstjórn
Björgvin Helgason oddviti, Jónella Sigurjónsdóttir vararitari, Ása Helgadóttir
aðalmaður, Stefán Ármannsson aðalmaður, Daníel Ottesen aðalmaður, Ólafur Ingi
Jóhannesson 1. varamaður og Brynja Þorbjörnsdóttir 2. varamaður.
Skúli Þórðarson sveitarstjóri, ritaði fundargerð.
Arnheiður Hjörleifsdóttir og Hjördís Stefánsdóttir höfðu boðað forföll.
Björgvin Helgason oddviti setti fundinn og bauð sveitarstjórnarmenn velkomna til
fundar og var síðan gengið til áður boðaðrar dagskrár.
1. 1412001F - Sveitarstjórn - 187
Fundargerðin framlögð.
2. 1501007 - Rekstraryfirlit janúar - nóvember 2014.
Frá fjármálastjóra Hvalfjarðarsveitar.
Rekstraryfirlit janúar - nóvember 2014 lagt fram til kynningar.
3. 1305037 - Stjórnsýslukæra vegna framkvæmdaleyfis Bugavirkjunar,
dags. 15. maí 2013.
Minnisblað vegna úrskurðar UUA í máli nr. 47/2013, frá Pacta og úrskurður
Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála.
Til kynningar lagður fram úrskurður Úrskurðarnefndar umhverfis- og
auðlindamála frá 12. desember sl.
Úrskurðurinn er vegna áður framkominnar stjórnsýslukæru í tengslum við
útgáfu framkvæmdaleyfis o.fl. af hálfu Hvalfjarðarsveitar v/ Bugavirkjunar.
Í forsendum úrskurðarins kemur fram að ákvörðun Orkustofnunar um
útgáfu leyfis til miðlunarlóns hafi hvorki verið haldinn form- né
efnisannmörkum og sé því lögmæt. Af þessum sökum hafi legið fyrir gilt
leyfi Orkustofnunar þegar ákvarðanir sveitarstjórnar og byggingarfulltrúa
Hvalfjarðarsveitar voru teknar um útgáfu framkvæmdar- og byggingarleyfis
vegna Bugavirkjunar. Þá hafi framkvæmdir verið í samræmi við
deiliskipulag Eystri-Leirárgarða, sbr. breytingar sem gerðar voru á því og
tóku gildi 24. september 2012. Með vísan til þessa og að málsmeðferðin
var að örðu leyti talin í samræmi við lög var kröfu kæranda um ógildingu
ákvarðana hafnað og þar með fallist á málatilbúnað Hvalfjarðarsveitar og 452
Orkustofnunar. Úrskurðurinn felur í sér að ákvörðun sveitarstjórnar og
byggingarfulltrúa um útgáfu framkvæmda- og byggingarleyfis vegna
Bugavirkjunar er talin lögmæt og stendur því óhögguð.
4. 1501009 - Auglýst eftir umsóknum til að taka að sér undirbúning og
framkvæmd 28. Landsmóts UMFÍ árið 2017.
Erindi frá Ungmennafélagi Íslands.
Til kynningar lagt fram bréf UMFÍ þar sem auglýst er eftir umsóknum frá
sambandsaðilum UMFÍ um að taka að sér undirbúning og framkvæmd 28.
Landsmóts UMFÍ árið 2017.
5. 1501005 - 47. fundur stjórnar Höfða hjúkrunar- og dvalarheimilis.
Fundargerðin framlögð.
6. 1501006 - 823. fundur Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Fundargerðin framlögð.
7. 1501008 - 113. fundur stjórnar SSV, 3. desember 2014.
Fundargerðin framlögð.
Fleira gerðist ekki. Fundargerðin upp lesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 16:10