Sveitarstjórn
Sigurður Sverrir Jónsson oddviti, Ása Helgadóttir varaoddviti, Sævar Ari Finnbogason ritari, Hallfreður Vilhjálmsson aðalmaður, Arnheiður Hjörleifsdóttir aðalmaður, Halldóra Halla Jónsdóttir aðalmaður og Björgvin Helgason 1. varamaður.
Laufey Jóhannsdóttir sveitarstjóri, ritaði fundargerð.
Sigurður Sverrir Jónsson oddviti, setti fundinn og bauð menn velkomna til fundar og var síðan gengið til áður boðaðrar dagskrár. Oddviti leitaði afbrigða að taka liði 9 10 og 18 fyrst á dagskrá. Samþykkt samhljóða. Launa- og fjármálafulltrúi (KHÓ) sat fundinn undir lið 9 10 og 18 ásamt skipulags- og byggingarfulltrúa. Að auki sat sveitarstjóri(LJ) fundinn ritaði fundargerð.
1. 1210002F - Sveitarstjórn - 136
HV ræddi lið 2.3 mál 1210052 og spurðist fyrir varðandi afgreiðslu. SAF svaraði fram komna fyrirspurn og að erindið hafi ekki verið rætt í USN. Lagði til að taka erindið fyrir á næsta fundi sveitarstjórnar. AH ræddi erindið og lagði til að vísa erindinu til USN nefndar. Tillagan samþykkt samhljóða 7-0. Liður 2.5 mál 1210050 engar athugasemdir hafa borist. Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við umsögnina. Tillagan samþykkt 5-0. AH og HV sitja hjá. Fundargerðin framlögð
2. 1210084 - 12. fundur starfshóps um hitaveituvæðingu kaldra svæða.
ÁH gerði grein fyrir fundargerðinni og ræddi tillöguna varðandi nafnabreytingu, orkuöflun og upplýsingar frá ISOR. HV ræddi jarðhitaleit og nafnabreytingu á nefndinni. Tillaga varðandi breytingu á nafni starfshópsins er felld 7-0. Fundargerðin framlögð
3. 1210082 - 31. fundur fjölskyldunefndar.
LJ gerði grein fyrir að sérstakar húsaleigubætur eru í frumvarpsdrögunum fjárhagsáætlunarinnar fyrir árið 2013. HHJ gerði grein fyrir efnisatriðum fundargerðarinnar. Fundargerðin framlögð.
4. 1210083 - 6. og 7. fundur starfshóps um ljósleiðaravæðingu.
Texti kynningarbréfs, sjá 7. fundargerð starfshópsins.
SAF gerði grein fyrir fundargerðunum og ræddi tillögur varðandi nafn á
félaginu, hugmynd að gjaldskrá og framkvæmd. LJ ræddi fundargerðina, gjaldskrámál, nafn og kostnaðaratriði. BH ræddi fram komnar tillögur, styrk á endapunkti. HV ræddi erindið og fram komnar tillögur og bréf til landeigenda. LJ svaraði fram komnum fyrirspurnum. AH ræddi nafn, kostnað, drög að bréfi. SAF svaraði fram komnum fyrirspurnum varðandi tæknilegar útfærslur. LJ gerði grein fyrir greiningu verkefnisins og að rétt er að skoða nánar varðandi leyfisöflun og fleira varðandi undirbúning ræddi einnig lið 21. og 22. í dagskrá fundarins. HV benti á að forgangsraða innan verkefnisins. SAF svaraði fram komnum fyrirspurnum og benti á lið 8 í 7. fundargerðinni. HV ræddi fram komnar ábendingar. SSJ lagði til að fresta afgreiðslum á fundargerðinni til næsta fundar. Tillagan samþykkt 6-0. SAF situr hjá við afgreiðsluna.
5. 1211006 - 7. fundur ungmennaráðs Hvalfjarðarsveitar.
Fundargerðin framlögð.
6. 1210086 - Fundur kjörstjórnar í Hvalfjarðarsveit, 20. október, 2012.
Fundargerðin framlögð.
7. 1211015 - 94. fundur fræðslu- og skólanefndar.
ÁH gerði grein fyrir efnisatriðum fundargerðarinnar. HV ræddi fundargerðina og lið 3. ÁH svaraði fram komnum fyrirspurnum. Fundargerðin framlögð.
8. 1211022 - 10. fundur nýsköpunarsjóðs Hvalfjarðarsveitar.
SAF ræddi fundargerðina. HV lagði til að fresta afgreiðslu á fundargerðinni. SAF benti á að fjármunir eru á fjárhagsáætlun yfirstandandi árs. Tillaga um frestun afgreiðslu samþykkt 7-0. Fundarhlé
9. 1206045 - Fjárhagsáætlun 2013.
Fyrri umræða. Greinargerð sveitarstjóra og fylgigögn.
LJ gerði grein fyrir drögum að fjárhagsáætlun fyrir árið 2013 gerði grein fyrir forsendum fjárhagsáætlunar og fór yfir helstu lykiltölur. Þakkaði starfsfólki skrifstofunnar undirbúning og lagði til að frumvarpinu verði vísað til síðari umræðu og afgreiðslu á fundi sveitarstjórnar þann 11. desember. AH ræddi frumvarpsdrögin og óskar eftir fyrir hönd E lista að skoða lægsta mögulega útsvar, spurðist fyrir varðandi fjármuni í íbúaþing og lagði til að skoða að taka 2% af fasteignagjöldum af stærri fyrirtækjum til sérstakra umhverfisverkefna. HV þakkaði fyrir framlögð gögn og spurðist fyrir varðandi viðhaldsáætlun og forgangsröðun hennar. ÁH ræddi frumvarpsdrögin og benti á að líklega vantaði inn í fé vegna reiðvallargerðar og að líklega þurfi að bæta við varðandi aðalskipulagsmál. SAF þakkaði fram lögð gögn, benti á að ljósleiðaravæðing væri stærsta verkið, ræddi fram komna tillögu varðandi
umhverfismál. SSJ ræddi frumvarpið og úttekt óháðra sérfræðinga á þolmörkum Grundartanga á vegum Faxaflóahafna. LJ svaraði fram komnum fyrirspurnum. AH tók jákvætt í hugmynd varðandi vinnufund og ræddi hugmyndir varðandi fyrirkomulag í eldhúsi Skýjaborgar. Ræddi hugmyndir Faxaflóahafna varðandi umhverfismál. Tillaga um að vísa frumvarpinu til milliumræðu 27. nóvember og síðari umræðu þann 11. desember samþykkt samhljóða 7-0. HHK svaraði fyrirspurnum varðandi mötuneyti í Skýjaborg og starf sitt. ÁH fór yfir að beiðnin varðandi lagfæringar á eldhúsinu í Skýjaborg er komin frá starfsmönnum.
10. 1211018 - Viðauki fjárhagsáætlunar 2012.
Breytingar vegna bókhalds, áður samþykktar millifærslur og fleira frá fjármálastjóra.
KHÓ fór yfir lykiltölur og erindið. Lagði til að samþykkja fyrirliggjandi tillögur. HV spurðist fyrir varðandi framkvæmdir við rotþró við Heiðarborg. HHK svaraði fram komnum fyrirspurnum. Tillögur varðandi millifærslur varðandi veitur, jöfnunarsjóð, starfslok, fráveitur en að undanskildum lið 4628 rotþró samþykktar samhljóða 7-0. Tillaga um að vísa afgreiðslu varðandi rotþró við Heiðarborg til næsta fundar og fá formlega tillögu varðandi verkefnið. Samþykkt samhljóða 7-0
11. 1211003 - Samningur við Elkem, vegna vatnsveitumála.
Erindi Guðmundar Eiríkssonar dagsett 2. nóvember, 2012. A) Kynning um stöðu vatnsveitumála á Grundartanga og nágrenni. B) Samningur varðandi afhendingu og öflun vatns, ásamt fylgigögnum.
A) lagt fram B) sveitarstjórn samþykkir samninginn samhljóða 7-0.
12. 1210074 - Kærð samþykkt sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar á deiliskipulagi Eystri-Leirárgarða, Bugavirkjun.
Erindi frá Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála, dagsett 31. október 2012. Þegar sent sveitarstjórn og USN nefnd.
Sveitarstjóri gerði grein fyrir að nú þegar hefur verið send greinargerð og svar sent til Úrskurðarnefndar. SAF ræddi erindið. AH ræddi erindið. Lagt fram.
13. 1211002 - Kærð samþykkt sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar um framkvæmdaleyfi fyrir Bugavirkjun.
Erindi frá Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála, dagsett 24. október 2012. Þegar sent sveitarstjórn og USN nefnd.
Sveitarstjóri gerði grein fyrir að nú þegar hefur verið send greinargerð og svar sent til Úrskurðarnefndar. Lagt fram.
14. 1104023 - Hitaveituvæðing kaldra svæða í Hvalfjarðarsveit.
Bréf frá Hitaveitufélagi Hvalfjarðar sf. dagsett 29. október 2012.
SSJ ræddi erindið. Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við hugmyndir Hitaveitufélags Hvalfjarðar varðandi að kanna möguleika hjá Leirárskógum varðandi vatnsöflun. Tillagan samþykkt samhljóða 7-0
15. 1211024 - Skipulagsskrá Snorrastofu - breytingartillögur
Erindi frá Snorrastofu, dagsett 8. nóvember 2012.
Hvalfjarðarsveit samþykkir erindið samþykkt samhljóða 7-0
16. 1211025 - Land undir gagnaver og annan léttan umhverfisvænan iðnað í landi Eystra-Miðfells og Kalastaðakots.
Erindi frá Borealis, dagsett 8. nóvember 2012. Áður sent skipulags- og byggingarfulltrúa og form. USN nefndar.
SSJ fór yfir erindið. Tillaga um að vísa erindinu til USN nefndar og menningar- og atvinnuþróunarnefndar. Tillagan samþykkt samhljóða 7-0
17. 1211026 - Áskorun til sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar.
Erindi frá Birni Páli Fálka Valssyni. Varðandi bundnar hlutfallskosningar og óbundnar kosningar.
SSJ ræddi erindið. AH lagði til að framboðin taki tillöguna til umfjöllunar hjá sér. Ræddi einnig að skoða hvort erindið falli ekki undir umfjöllun á íbúaþingi þar sem fjallað er um stjórnsýslu. SAF ræddi erindið, lýðræðismál og fl. og að umræðan þurfi að koma úr grasrótinni jafnframt að framboðin sjálf þurfi að taka erindið til umfjöllunar. Tillagan samþykkt 7-0
18. 1211019 - Rekstraryfirlit 1/1-30/9 2012 og efnahagsyfirlit pr. 30/9 2012.
KHÓ fór yfir rekstraryfirlitið og svaraði fram komnum fyrirspurnum. SAF ræddi yfirlitið. Erindið er framlagt
19. 1210085 - Verksamningur við Hvalfjarðarsveit um Fræðslustjóra að láni.
Frá Sveitamennt, dagsett 26. október 2012.
LJ gerði grein fyrir samningnum. Erindið framlagt.
20. 1208004 - Staðarval fyrir nýjan urðunarstað.
Frá Sorpurðun Vesturlands. Bréf varðar fyrirspurn um urðunarstaði fyrir úrgang. Þegar sent sveitarstjórn, skipulags- og byggingarfulltrúa og form. USN nefndar.
Lagt fram.
21. 1211014 - Ljósleiðari í Hvalfjarðarsveit.
Minnisblað sveitarstjóra frá fundi 5. nóvember 2012.
LJ ræddi minnisblaðið. Erindið framlagt.
22. 1210083 - Samantekt varðandi ljósleiðaravæðingu.
Staða verkefnis.
LJ ræddi minnisblaðið. Erindið framlagt.
23. 1211012 - IPA verkefni með áherslu á innflytjendur.
Frá Velferðarráðuneytinu, dagsett 29. október 2012. Þegar sent félagsmálastjóra og skólastjóra Leik- og grunnskóla.
Lagt fram.
24. 1205052 - Beiðni um meira land til að planta trjám.
Samantekt sveitarstjóra frá fundi 20. september 2012.
SSJ og BH ræddu minnisblaðið. Erindið framlagt.
25. 1211007 - Frumvarp til lag a um verndar- og orkunýtingaráætlun (flokkun virkjunarkosta og gerð orkunýtingaráætlunar), 3. mál.
Frá Alþingi. Áður sent skipulags- og byggingarfulltrúa og form. USN nefndar.
Erindið framlagt
26. 1211008 - Frumvarp til laga um almenningssamgöngur.
Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Áður sent skipulags- og byggingarfulltrúa og form. USN nefndar.
Erindið framlagt
27. 1211010 - Til umsagnar tillaga til þingsályktunar um málefni barna og ungmenna með tal- og málþroskaröskun, 80. mál.
Frá Alþingi. Áður sent félagsmálastjóra og form. fjölskyldunefndar.
Erindið framlagt
28. 1211011 - Til umsagnar tillaga til þingsályktunar um jafnt búsetuform barna sem búa á tveimur heimilum (tvöfalt lögheimili), 152. mál.
Frá Alþingi. Áður sent félagsmálastjóra og form. fjölskyldunefndar.
Erindið framlagt
29. 1210075 - Til umsagnar tillaga til þingsályktunar um gagngera endurskoðun á skipulagi og forsendum hvalveiða, 83. mál.
Frá Alþingi. Áður sent skipulags- og byggingarfulltrúa og form. USN nefndar.
SAF ræddi erindið. Erindið framlagt
30. 1210076 - Til umsagnar frumvarp til laga um félagslega aðstoð (bifreiðastyrkir hreyfihamlaðra), 36. mál.
Frá Alþingi. Áður sent félagsmálastjóra og form. fjölskyldunefndar.
Erindið framlagt
31. 1211023 - Frumvarp til laga um miðstöð innanlandsflugs (hlutverk Reykjavíkurflugvallar, heildarlög), 120. mál.
Frá Alþingi. Áður sent skipulags- og byggingarfulltrúa og form. USN nefndar.
Erindið framlagt
32. 1210087 - 67.-70. fundir Menningarráðs Vesturlands.
Fundargerðirnar framlagðar.
33. 1211009 - 800. fundur Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Fundargerðin var send sveitarstjórn rafrænt, en hún mun liggja frammi. Hægt að sjá hana hér http://www.samband.is/um-okkur/fundargerdir-stjornar/
Fundargerðin framlögð
34. 1211016 - 92. fundur stjórnar SSV, 5. nóvember 2012.
Fundargerðin framlögð
35. 1211017 - 109. fundur Heilbrigðisnefndar Vesturlands.
Fundargerðin framlögð
Fleira gerðist ekki. Fundargerðin upp lesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 21.00 .