Sveitarstjórn
Sigurður Sverrir Jónsson, Ása Helgadóttir, Sævar Ari Finnbogason, Hallfreður Vilhjálmsson, Arnheiður Hjörleifsdóttir, Stefán Ármannsson og Brynjar Ottesen 1. varamaður.
Laufey Jóhannsdóttir sveitarstjóri, ritaði fundargerð.
Sigurður Sverrir Jónsson oddviti, setti fundinn og bauð menn velkomna til fundar og var síðan gengið til áður boðaðrar dagskrár. Oddviti leitaði afbrigða að taka nýtt mál 1210028 kjörskrá vegna þjóðaratkvæðagreiðslu á dagskrá, samþykkt samhljóða og að fá heimild til þess að taka lið 10 rekstraryfirlit fyrst á dagskrá, Samþykkt samhljóða.
Launa- og fjármálafulltrúi (KHÓ) undir lið 10. 1210020. Að auki sat sveitarstjóri(LJ) fundinn ritaði fundargerð.
1. 1209003F - Sveitarstjórn - 134
SSJ gerði grein fyrir lið 6, mál 1209033 frá Akraneskaupstað vegna hugmynda um atvinnuþróunarfélag. Fundargerðin framlögð.
2. 1210011 - 10. fundur menningar- og atvinnuþróunarnefndar.
LJ ræddi lið 2 IPA styrkumsóknir og gerði grein fyrir umræðum varðandi styrkumsóknir. AH spurðist fyrir varðandi styrkumsóknir. HV ræddi lið 2 IPA styrkir og óskaði eftir kynningu frá SSV varðandi erindið. SAF ræddi lið 2 IPA styrki, sóknaráætlun 2020 og umræður frá aðalfundi SSV. LJ svaraði fyrirspurnum. SSJ lagði til að vísa lið 6 til fjárhagsáætlunar fyrir árið 2013. Tillagan samþykkt samhljóða 7-0. Fundargerðin framlögð.
3. 1210012 - 30. fundur fjölskyldunefndar.
Fundargerðin framlögð
4. 1210024 - 93. fundur fræðslu- og skólanefndar.
ÁH fór yfir efnisatriði fundargerðarinnar. AH ræddi lið 2 varðandi lóð og mötuneyti leikskóla. ÁH fór yfir hugmyndir varðandi úrbætur. LJ gerði grein fyrir viðhaldi, úrbótum og að verið er að vinna kostnaðaráætlun. AH ræddi skýrslu Heilbrigðiseftirlits og ábendingar varðandi úrbætur. SAF ræddi mötuneyti beggja skóla. Fundargerðin framlögð.
5. 1210025 - 11. fundur starfshóps um hitaveituvæðingu kaldra svæða.
HV óskaði eftir upplýsingum varðandi lið 2. SSJ svaraði fram komnum fyrirspurnum. SÁ ræddi fundargerð og að hann vék af fundi að afloknum fyrsta lið. Fundargerðin framlögð.
6. 1210026 - Kosning varamanns í fulltrúaráð Fjölbrautaskóla Vesturlands.
Kjósa þarf 2. varamann í fulltrúaráðið. Nú þegar er búið að kjósa Björgvin Helgasson sem varamann.
Tillaga um Helga Pétur Ottesen. Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.
7. 1210007 - Umferð stórra ökutækja í Melahverfi.
Erindi frá Petrínu Ottesen og Hlyni Sigurbjörnssyni, dagsett 25. september 2012.
SAF gerði grein fyrir íbúafundi með íbúum í Melahverfi sem haldinn var 4. október, bréfritarar mættu á þann fund, farið var yfir erindið þar. Lagði til að vísa erindinu til umfjöllunar í USN nefnd. HV ræddi erindið og deiliskipulag Melahverfis. SAF svaraði fram komnum fyrirspurnum. ÁH ræddi íbúafundinn og þakkaði fyrir íbúafundinn. HV svaraði fram komnum ábendingum. Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.
8. 1210009 - Sala eigna, Skólastígur 1
Kauptilboð frá Fasteignamiðlun Vesturlands ehf. fyrir Viktor Örn Guðmundsson.
LJ gerði grein fyrir tilboði og lagði til að taka kauptilboðinu sem fyrir liggur. SÁ ræddi númer á húsum við Skólastíg. HV benti á upplýsingar í söluyfirlit lýsing sem vert er að skoða varðandi leikskóla- og fæðisgjöld. SAF ræddi söluna, gerði grein fyrir atkvæði sínu og benti á uppsafnaða viðhaldsþörf. Tillaga um að sveitarstjóri gangi frá sölunni m. v. fyrirliggjandi tilboð. Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.
9. 1210010 - Breyting á skilmálum láns.
Erindi frá Faxaflóahöfnum, dagsett 28. september 2012.
SSJ lagði til að samþykkja breytingu á skilmálunum. Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.
10. 1210028 - Fyrirmæli og leiðbeiningar um meðferð kjörskrárstofna frá Þjóðskrá vegna ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu þann 20/10´12.
Kjörskrá liggur frammi.
SSJ lagði til að gera hlé til þess að fara yfir kjörskrá. Samþykkt. Að afloknu hléi. Sveitarstjórn samþykkir kjörskránna með áorðnum breytingum 7-0. Kjörskrá liggur frami á skrifstofu Hvalfjarðarsveitar á opnunartíma fram að kjördegi.
11. 1210020 - Rekstraryfirlit janúar - ágúst 2012.
KHÓ gerði grein fyrir yfirlitinu. Erindið framlagt.
12. 1206045 - Fjárhagsáætlun 2013.
LJ gerði grein fyrir vinnu við fjárlagagerð. AH ræddi ábyrgð sveitarstjórnar varðandi fjárhagsáætlun og hugmyndir um núllgrunnsáætlun. Og ræddi rammaáætlun fyrir skólann. LJ svaraði fram komnum ábendingum. Erindið framlagt.
13. 1208015 - Öryggismál í sumarhúsabyggðinni Kambshólslandi.
Samantekt frá fundi með fulltrúum sumarhúsabyggða í Hvalfjarðarsveit.
LJ gerði grein fyrir minnisblaðinu og umræðum á fundinum. AH ræddi ljósleiðaravæðingu í sumarhúsabyggðunum, sorphreinsun skv. rekstraryfirliti, fundarboð og að sveitarstjórn var ekki boðuð til fundarins. SAF svaraði fram komnum fyrirspurnum varðandi ljósleiðaravæðingu, öryggis- myndavélar, öryggishlið, reiðleiðir. SSJ ræddi umferð hestamanna um sumarhúsalöndin. SÁ ræddi reiðumferð um merktar reiðleiðir. SSJ ræddi merkingar reið- og gönguleiða í aðalskipulagi. SAF svaraði fram komnum fyrirspurnum varðandi reið- og gönguleiðir. SSJ kom með fyrirspurn varðandi reið- og gönguleiðir. SÁ ræddi reiðvegi í aðalskipulagi. SAF svaraði fyrirspurnum. AH ræddi skipulag reið- og gönguleiða og fundarboðun. LJ svaraði fram komnum fyrirspurnum. Erindið framlagt.
14. 1207005 - Fasteignamat 2013.
Frá Þjóðskrá Íslands, skýrsla um fasteignamat 2013. Skýrslan liggur frammi.
Erindið framlagt
15. 1210006 - Fyrirspurn um málstefnu sveitarfélaga skv. 130. gr. sveitarstjórnarlaga.
Frá innanríkisráðuneytinu, dagsett 21. september 2012. Svarbréf sveitarstjóra.
Erindið framlagt
16. 1210016 - Verkefni í Fíflholtum, gjaldskrábreyting og nýtt starfsleyfi.
Erindi frá Sorpurðun Vesturlands, dagsett 21. september 2012. Þegar sent til form. USN nefndar og skipulags- og byggingarfulltrúa Hvalfjarðarsveitar.
Erindið framlagt
17. 1210019 - Brunavarnaáætlun 2012- 2016.
Fyrir starfssvæði Slökkviliðs Akraness og Hvalfjarðarsveitar. Liggur frammi.
ÁH benti á athugasemdir varðandi brunahana og lagfæringar. Óskaði eftir að málið verði tekið til umfjöllunar í USN nefnd. LJ svaraði fram komnum athugasemdum. Erindið framlagt
18. 1209014 - Almenningssamgöngur í Hvalfjarðarsveit.
Minnisblað vegna fundar með fulltrúum Vegagerðarinnar og fl., 3. október 2012.
LJ gerði grein fyrir umræðum á fundinum. Fór yfir fyrirhugaðar framkvæmdir Vegagerðarinnar í Hvalfjarðarsveit á árinu 2013. HV ræddi efni minnisblaðsins varðandi Strætóbiðstöð og vegaframkvæmdir. SSJ svaraði fram komnum fyrirspurnum. SAF gerði grein fyrir umræðum um Strætóbiðstöð á íbúafundi í Melahverfi. AH ræddi minnisblaðið og fundarboðun. ÁH svaraði að hún situr í nefnd á vegum SSV varðandi almenningssamgöngur. SSJ svaraði fram komnum athugasemdum. HV svaraði fram komnum athugasemdum. AH ræddi fram komnar athugasemdir. Erindið framlagt.
19. 1210003 - Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis hyggst hefja umfjöllun um 89. þingmál, vernd og orkunýting landsvæða (rammaáætlun)
Frá Alþingi, þegar sent form. USN nefndar og skipulags- og byggingarfulltrúa Hvalfjarðarsveitar.
Erindið framlagt
20. 1210004 - Frumvarp til laga um kosningar til Alþingis og kosningar til sveitarstjórna (aðstoð við atkvæðagreiðslu), 180. mál.
Frá Alþingi, þegar sent til form. kjörnefndar.
Erindið framlagt
21. 1210014 - Frumvarp til laga um lækningatæki (aukið eftirlit, skráning o.fl.,EES-reglur), 67. mál.
Frá Alþingi, þegar sent til form. fjölskyldunefndar og félagsmálastjóra Hvalfjarðarsveitar.
Erindið framlagt
22. 1210015 - Frumvarp til laga um barnaverndarlög ( frestun tilfærslu heimila og stofnana fyrir börn), 65. mál.
Frá Alþingi, þegar sent til form. fjölskyldunefndar og félagsmálastjóra Hvalfjarðarsveitar.
Erindið framlagt
23. 1210017 - 101. fundur Faxaflóahafna.
HV benti á að Ása Helgadóttir sat þennan fund. Fundargerðin framlögð
24. 1210027 - 91. fundur stjórnar SSV, 1. október 2012.
Fundargerðin framlögð.
Fleira gerðist ekki. Fundargerðin upp lesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 19.15 .