Fræðslu- og skólanefnd 2009-2014
Daníel Ottesen formaður, Dagný Hauksdóttir varaformaður, Eyrún Jóna Reynisdóttir
ritari, Björn Páll Fálki Valsson aðalmaður, Berglind Jóhannesdóttir aðalmaður, Guðrún
Dadda Ásmundsdóttir áheyrnafulltrúi, Helena Bergström áheyrnafulltrúi, Ragna
Kristmundsdóttir áheyrnafulltrúi, Elín Ósk Gunnarsdóttir áheyrnafulltrúi og Jón Rúnar
Hilmarsson embættismaður.
Eyrún Jóna Reynisdóttir Ritari fræðslu- og skólanefndar, ritaði fundargerð.
1. 1510031 - Skólaakstur okt.2015
Nefndin vísar erindi áfram til sveitarstjórnar.
2. 1510032 - Tónlistarnám í Hvalfirði okt.2015
Nefndin óskar eftir að vinna við samanburð á rekstri tónlistarskóla í öðrum
grunnskólum verði kláruð og kynnt fyrir fræðslu- og skólanefnd. Lagt er til
að þessi samanburður verði lagður til grundvallar við endurskoðun á
tónlistarnámi í Hvalfjarðarsveit. Erindinu verður vísað áfram til
Viðræðuhóps um samstarfssamninga við Akraneskaupstaðs.
3. 1510033 - Greinagerð um námsfrávik og ósk um mannaráðningu.
Afgreiðslu frestað til næsta fundar.
4. 1412019 - Samstarfssamningar við Akraneskaupstað.
Nefndin óskar eftir fundi með Viðræðuhóps um samstarfssamninga við
Akraneskaupstað.
5. 1403013 - Drög að verklagi vegna afreksstyrkja.
Nefndin ákvað að formanni sé falið ásamt sveitarstjóra að vinna drög að
reglum vegna afreksstyrkjasjóð.
6. 1508008 - Fjárhagsáætlun 2016 - nefndir.
Nokkrar umræður urðu um fjárhagsáætlun.
7. 1510045 - Húsnæðismál Skýjaborgar.
Nefndin tekur undir erindið og óskar eftir fundi með mannvirkjanefnd um
stöðu mála.
8. 1510047 - 50 ára afmæli Heiðarskóla.
Nefndin tekur jákvætt í erindið og óskar eftir að fjármagn fylgi varðandi
afmælið í gerð næstu fjárhagsáætlunar.
9. 1510050 - Beiðni um áframhaldandi leikskóladvöl á Akranesi, vegna
óbreyttra aðstæðna.
Nefndin felur formanni að óska eftir frekari gögnum og málinu því frestað
til næsta fundar.
10. 1510048 - Fundargerð foreldrafélagsins í október 2015.
Fundargerð framlögð.
11. 1510044 - Breytingar á aðalnámskrá grunnskóla.
Lagt fram til kynningar.
12. 1509058 - Starf umsjónaraðila félagsmiðstöðvar.
Lagt fram til kynningar.
13. 1510049 - Ársskýrsla Leik- og grunnskóla Hvalfjarðarsveitar.
Lagt fram til kynningar.
14. 1510051 - Mánaðarskýrslur skólastjóra: ágúst, september og október
2015.
Lagt fram til kynningar.
Fleira gerðist ekki. Fundargerðin upp lesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 18:30 .