Fræðslu- og skólanefnd 2009-2014
Daníel Ottesen formaður, Dagný Hauksdóttir varaformaður, Eyrún Jóna Reynisdóttir
ritari, Berglind Jóhannesdóttir aðalmaður, Guðrún Dadda Ásmundsdóttir
áheyrnafulltrúi, Helena Bergström áheyrnafulltrúi, Ragna Kristmundsdóttir
áheyrnafulltrúi, Elín Ósk Gunnarsdóttir áheyrnafulltrúi og Jón Rúnar Hilmarsson
embættismaður.
Eyrún Jóna Reynisdóttir ritari, ritaði fundargerð.
1. 1508009 - Forvarnarstefna
Nefndin frestar afgreiðslu til næsta fundar.
2. 1508010 - Styrkumsókn í íþróttasjóð
Fræðslu- og skólanefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja
styrkumsóknina að því gefnu að staðfesting um þátttöku liggi fyrir.
3. 1502002 - Skólanámskrá Heiðarskóla og Skýjaborgar.
Jón Rúnar Hilmarsson skólastjóri kynnti skólanámskrá Heiðarskóla og
Skýjaborgar. Hann tók við ábendingum nefndarmanna. Afgreiðslu máls
frestað til næsta fundar.
4. 1508018 - Starfsáætlun Skýjaborgar 2015-2016.
Afgreiðslu máls frestað til næsta fundar.
5. 1508019 - Starfsáætlun Heiðarskóla 2015-2016.
Fræðslu- og skólanefnd samþykkir starfsáætlun Heiðarskóla fyrir skólaárið
2015-2016.
6. 1502046 - Skólastarf í Hvalfjarðarsveit - fagleg úttekt.
JRH kynnti viðbrögð við skýrslu MSHA vegna faglegrar úttektar í
Heiðarskóla.
7. 1508020 - Staðan í Skýjaborg, haust 2015.
Fræðslu- og skólanefnd telur brýnt að sveitastjórn hugi að stefnumótun
varðandi húsnæðismál leikskólans Skýjaborgar.
Fleira gerðist ekki. Fundargerðin upp lesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 18:40 .