Br. á deiliskipulagi á iðnaðar- og hafnarsvæðis á Grundartanga vestursvæði.
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum þann 13. október að auglýsa breytingu á deiliskipulagi ásamt umhverfisskýrslu á iðnaðar- og hafnarsvæðis á Grundartanga samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Sú breyting á deiliskipulagi iðnaðar- og hafnarsvæði sem hér um ræðir tekur til útvíkkunar á losunarsvæði á núverandi flæðigryfju á vestursvæði, suðaustan (neðan) Grundartangavegar og einnig leiðréttingar á lóðarstærðum.
Grundartangi-deiliskipulag
Grundartangi-yfirlitsmynd
Grundartangi-greinargerð
Deiliskipulagstillagan er til sýnis á skrifstofu Hvalfjarðarsveitar og einnig á heimasíðu sveitarfélagsins www.hvalfjardarsveit.is.
Kynning verður á skrifstofu Hvalfjarðarsveitar föstudaginn 6.nóvember á milli 10:00 – 12:00.
Athugasemdum skal skilað til skrifstofu Hvalfjarðarsveitar að Innrimel 3, 301 Akranesi, eða á netfangið skipulag@hvalfjardarsveit.is merkt ”Grundartangi”. fyrir 18. desember 2020.
Bogi Kristinsson Magnusen
Skipulags- og umhverfisfulltrúi Hvalfjarðarsveitar