Ertu að flytja í Hvalfjarðarsveit
Velkomin í Hvalfjarðarsveit.
Hérna á síðunni eru ýmsar nytsamlegar upplýsingar fyrir þá sem eru að hugsa um eða ætla sér að flytja í sveitarfélagið. Að auki er margvíslegar upplýsingar um þjónustu sveitarfélagsins að finna víða á heimasíðunni okkar.
Kynningarmyndband um Hvalfjarðarsveit sem búsetukost "Hvalfjarðarsveit - Þar sem lífið er ljúft".
Skrifstofa Hvalfjarðarsveitar
Opnunartími: mánudaga til föstudaga kl. 10:00 til 12:00 og 12:30 til 15:00 Sími, 433 8500 Netfang: hvalfjardarsveit@hvalfjardarsveit.is.
Skrifstofa Hvalfjarðarsveitar eru staðsett í stjórnsýsluhúsinu við Innrimel 3. Skrifstofa Hvalfjarðarsveitar veitir allar almennar upplýsingar um þjónustu og starfsemi sveitarfélagsins en allar þær upplýsingar er líka að finna víðs vegar á heimasíðu sveitarfélagsins, m.a. undir síðunni Þjónusta á heimasíðu Hvalfjarðarsveitar.
Flutningstilkynning
Í dag fara allar tilkynningar um flutning í gegnum heimasíðu Hagstofu Íslands http://www.skra.is/ og er nýjum íbúum bent að nýta sér þann möguleika.
Ætlar þú að byggja?
Byggingarfulltrúi veitir allar upplýsingar um lóðir og framkvæmdir.
Húsnæði og heimili
Viltu kaupa húsnæði í Hvalfjarðarsveit? Fasteignasölur á Akranesi og víðar selja húsnæði í Hvalfjarðarsveit.
Hiti, vatn, rafmagn, fráveita og ljósleiðari.
Upplýsingar um veitumál í Hvalfjarðarsveit má finna HÉR.
Börn og unglingar
Leik- og grunnskóli
- Leikskólinn Skýjaborg sími 433 8530.
- Umsókn um leikskólapláss
- Heiðarskóli, grunnskóli sími 433 8525.
Framhaldsskólar
- Á Akranesi er Fjölbrautarskóli Vesturlands
- Í Borgarnesi er Menntaskóli Borgarfjarðar
- Tónlistarskólinn á Akranesi er starfræktur í samstarfi við Hvalfjarðarsveit.
Íþrótta- og tómstundastarf
Í Hvalfjarðarsveit og á Akranesi er rekið mjög fjölbreytt og þróttmikið íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsstarf, hvort heldur sem er í íþróttamannvirkjum, grunnskóla sveitarfélagsins eða í hinum fjölmörgu íþrótta- og tómstundafélögum.