Vorhreinsun 2024
Árleg vorhreinsun í Hvalfjarðarsveit verður samkvæmt neðangreindu og eru íbúar, sumarhúsaeigendur og rekstraraðilar hvattir til að taka til hjá sér fyrir sumarið. Almennt hefur vor- og sumartiltekt gengið vel og mælst vel fyrir og fólk hefur verið duglegt að nýta sér þessa þjónustu og vonumst við til að svo verði áfram.
Á tímabilinu frá 16. maí til og með 29. maí verða gámar staðsettir í Melahverfi, Hlíðarbæ og á Innnesi (í námu gegnt afleggjara að Ytra-Hólmi 1).
Eftirfarandi gámar verða til staðar:
- Gámur fyrir timbur.
- Gámur fyrir járn og dekk.
- Gámur fyrir gróðurúrgang.
- Gámur fyrir almennan (óflokkaðan) úrgang.
Þurfi íbúar að losa sig við spilliefni, er þeim bent á að hafa samband við skrifstofu Hvalfjarðarsveitar, sími 433-8500 / www.hvalfjardarsveit@hvalfjardarsveit.is
Frá 1. júní – 31. ágúst gefst íbúum í dreifbýli kostur á að fá tvær gerðir af gámum til afnota í tvo sólarhringa.
Eftirfarandi gámar eru í boði, og þá þarf að panta með að minnsta kosti tveggja daga fyrirvara:
- Gámur fyrir timbur.
- Gámur fyrir járn og dekk.
- Gámur fyrir gróðurúrgang.
- Gámur fyrir almennan (óflokkaðan) úrgang.
Tímabil hreinsunarátaks í frístundabyggðum er frá 1. júní til 31. ágúst ár hvert og eru gámar í boði í 11 daga samfellt innan tímabilsins og getur forsvarsfólk frístundahverfa ákveðið tímasetningu í samráði við sveitarfélagið.
Eftirfarandi gámar eru í boði, og þá þarf að panta með a.m.k. viku fyrirvara:
- Gámur fyrir timbur.
- Gámur fyrir járn.
- Gámur fyrir gróðurúrgang.
Allar pantanir þurfa að berast til Hvalfjarðarsveitar í síma 433-8500 eða með tölvupósti á netfangið www. hvalfjardarsveit@hvalfjardarsveit.is.
Lögð er áhersla á að aðilar kynni sér reglur áður en sótt er um gáma en þær má sjá hér á á heimasíðu Hvalfjarðarsveitar www.hvalfjardarsveit.is.
Umhverfis- og skipulagsdeild Hvalfjarðarsveitar