19. febrúar 2010
Viðskiptasamningur við Landsbankann
Á mánudaginn var undirritaður samningur um viðskipti milli Hvalfjarðarsveitar og Landsbankans. Um er að ræða heildarsaming sem nær yfir öll bankaviðskipti Hvalfjarðarsveitar.
Það skipti máli að hafa þessa þjónustu nærtæka en Hvalfjarðarsveit var áður með viðskipti okkar við Kaupþing banka sem nú er Arion banki. Þegar ákveðið var að loka útibúi þess banka á Akranesi var ástæða til þess að endurskoða málin enda var samningur okkar við bankann runninn út og því réttur tímapunktur núna.
Eftir viðræður við þær þrjár bankastofnanir sem til greina komu var niðurstaðan sú að semja við útibú Landsbankans á Akranesi. Við teljum okkur hafa náð góðum kjörum en samningurinn er til tveggja ára. Útibú Landsbankans á Akranesi mun jafnframt taka að sér innheimtu fasteignagjalda fyrir sveitarfélagið. Landsbankinn mun koma að fjármögnun byggingar nýs Heiðarskóla, ef til þess kemur.
Við undirritun samningsins sagði Hannes Marinó Ellertsson útibússtjóri Landsbankans á Akranesi, ánægjulegt að fá Hvalfjarðarsveit í viðskipti. “Við höfum verið að fara yfir rekstur Hvalfjarðarsveitar að undanförnu og teljum að bæði bankinn og sveitarfélagið hafi hag af þessum viðskiptum,” sagði hann.
Þess ber að geta að sveitarfélögin fjögur, sem Hvalfjarðarsveit var mynduð úr með sameiningu, höfðu bankaviðskipti sín víða áður en til sameiningar kom.
Til baka