Fimmtudaginn 18. febrúar kl. 11.00 voru opnuð, í lokuðu útboði í framhaldi af forvali, tilboð vegna nýframkvæmda við nýjan Heiðarskóla. Opnun fór fram á skrifstofu Hvalfjarðarsveitar, Innrimel 3
Eftirfarandi tilboð bárust;
ÍAV hf. Eftirfarandi eignir verði teknar sem greiðsla fyrir verkið; malarnáma, félagsheimilið Fannarhlíð og þriggja íbúða raðhús. kr. 764.100.609,-
ÍAV hf. Frávikstilboð 1. án eigna kr. 606.362.230,-, Frávikstilboð 2. Greiðsla með malarnámu kr. 576.362.230,-. Frávikstilboð 3. Tilboð með öðrum gluggaprofil lækkun tilboða um kr. 10.000.000,-. Frávikstilboð 4. með annari gerð innihurða og inniglugga lækkun tilboða um kr. 8.000.000,-
Eykt ehf. Eftirfarandi eignir verði teknar sem greiðsla fyrir verkið; malarnáma, félagsheimilið Fannarhlíð og þriggja íbúða raðhús kr. 627.722.391,-.
Eykt ehf. Frávikstilboð án eigna kr. 485.432.178,-.
Jáverk ehf Eftirfarandi eignir verði teknar sem greiðsla fyrir verkið; malarnáma, félagsheimilið Fannarhlíð og þriggja íbúða raðhús kr. 674.440.490,-
Jáverk ehf. Frávikstilboð 1. án eigna kr. 504.482.759,- Frávikstilboð 2. Annað verðmat á eignum í aðaltilboði kr. 508.482.759. Mat Jáverks: malarnáma kr. 25.000.000,- Fannahlíðkr. 12.000.000,- þriggja íbúða raðhús kr 15.000.000,-
Vestfirskir Verktakar Tilboð 1. eftirfarandi eignir verði teknar sem greiðsla í verkið; félagsheimilið Fannarhlíð, eldra skólahúsnæði Heiðarskóla og þriggja íbúða raðhús kr. 736.859.962,-
Tilboð 2. eftirfarandi eignir verði teknar sem greiðsla í verkið; Malarnáma, félagsheimilið Fannarhlíð og þriggja íbúða raðhús kr. 736.859.962,-
Vestfirskir Verktakar frávikstilboð 1. án eigna kr. 597.662.525,-
Kostnaðaráætlun hönnuða hljóðar upp á kr. 603.500.000,- Athugasemdir eftir opnun; Engar
Viðstaddir voru Skúli Lýðsson fundarritari, Þorbergur Karlsson VSÓ ráðgjöf,Laufey Jóhannsdóttir sveitarstjóri, Eyjólfur Bjarnason og Þorleifur Björnsson ÍAV hf.
Gylfi Gíslason Jáverk ehf. Eiríkur Arnarsson Eykt. Ármann Þ. Vestfirskir Verktakar. Björgvin Helgason, Hallfreður Vilhjálmsson, Magnús Hannesson og Dóra Líndal öll frá Hvalfjarðarsveit
Opnunar tilboða hafði verið beðið með eftirvæntingu og núna munu VSÓ ráðgjöf og verkkaupi fara yfir tilboðin.
Það var einkar ánægjulegt fyrir Hvalfjarðarsveit að heyra ummæli bjóðenda á fundinum. Bjóðendur bentu á að sérstaklega hefði verið vandað til verka, öll gögn sett farm með mjög skýrum hætti og fengu hönnuðir, nefndarmenn í verkefnisstjórn sem og sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar sérstakt hrós fyrir þessa þætti frá bjóðendum.
Yfirferð yfir tilboðin hefst strax í dag og er niðurstöðu þeirrar yfirferðar að vænta um miðja næstu viku. Vonast er til að framkvæmdir geti hafist innan tíðar við byggingu nýs skólahúsnæðis við Heiðarskóla
Fundargerð fundarins.