Á laugardögum í vetur á að hefjast ungbarnasund fyrir börn 0-2 ára í Heiðarborg ef næg þátttaka verður. Inga Bryndís Ingvarsdóttir verður með ungbarnasundið en hún er menntaður íþróttakennari og hefur tekið námskeið í kennslu á ungbarnasundi ásamt því að hafa kennt það síðastliðinn vetur í Reykjavík.
Um ungbarnasund
Tilgangur og markmið með ungbarnasundi er að veita markvissa örvun og aðlögun barna á aldrinum 0 - 2 ára í vatni.
Markmið með ungbarnasundi er að gefa foreldrum möguleika á með markvissri vinnu:
*Að venja barn við vatn og köfun, auka sjálfstraust og virðingu barnsins í vatni.
*Að barnið finni fyrir öryggi og líði vel í sundi.
*Að venja barn við vatn sem hreyfiumhverfi.
*Að barnið fái útrás fyrir hreyfiþörf sína og örvi þar með hreyfiþroska og styrk.
*Að venja barn við ögrandi umhverfi sem hefur örvandi áhrif á sem flest skynfæri barnsins og hækkun “streituþröskuldar”.
*Að skapa umhverfi þar sem foreldrar og barn geti aukið og syrkt tengslamyndun hvert við annað.
*Að foreldrar hittist og kynnist öðrum foreldrum með áþekk áhugamál þ.e. uppeldi og velferð barna sinna.
*Að barn öðlist þekkingu, skilning og stjórnun á líkamanum í vatni.
*Að foreldrar haldi athygli sinn og yfirvegun þegar þau eru í sundi eða í námunda við annað vatnsumhverfi.
Ungbarnasundið hefst 4. september og mun vera á hverjum laugardegi til 23. október samtals 8 skipti í Heiðarborg og mun hefjast klukkan 10:00 – 10:40.
Ungbarnasundið mun kosta 10.000 kr á barn og inn í því er aðgangur fyrir foreldri ofan í sundlaugina, ef fleiri vilja fylgja barninu í sundlaugina er það velkomið en þá þarf að greiða í laugina samkvæmt gjaldskrá. Skráning á námskeiðið fer fram hjá Ingu Bryndísi í síma 865-0651 einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið ingabryndis@hotmail.com