a aa aaa
28. júlí 2010

Fjölskylduhátíð að Hlöðum

Laugardaginn 7. ágúst  kl. 14:00 til 16:00 verður haldin fjölskylduhátíð að Hlöðum í tilefni af 30 ára afmæli félagsheimilisins Hlaða.

Allri fjölskyldunni er boðið á fjölskylduhátíðina.

 

 

Dagskrá hátíðar: 

 

26. júlí 2010

Kvennakvöld í Hvalfjarðarsveit

Kvennareiðarnefndin ætlar að standa fyrir kvennakvöldi í Hvalfjarðarsveit  föstudaginn 20. ágúst nk.

Endilega takið kvöldið frá og stefnum að því að eiga saman góða kvöldstund þó klárarnir fái frí þetta árið.

 

 

 

23. júlí 2010

Fótboltaæfingar UÍH

Tilkynning frá UÍH.

Kæru foreldrar/forráðamenn

Æfingagjöld fyrir fótboltaæfingarnar í sumar eru 5000,- kr og greiðist inn á reikning Ungmenna og íþróttafélags Hvalfjarðarsveitar 0186-26-100060 kt: 680110-1660.

Einnig má nota tómstundaávísun frá Hvalfjarðarsveit.

Kveðja, UÍH

21. júlí 2010

Fundur vegna fjárgirðingar

Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti á fundi sveitarstjórnar þann 22 júní sl. að óska eftir við byggingarfulltrúa að taka saman kostnaðaráætlun varðndi viðhald og endurbætur á girðingu frá Svarthamarsrétt að Kúhallará. 

20. júlí 2010

Fótbolti "Gömlu kempanna"

Eftir frábæra mætingu síðasta miðvikudag í fótbolta hefur verið ákveðið að halda áfram næstu miðvikudaga í sumar.
Það er mæting á miðvikudaginn klukkan 21:00 á fótboltavöllinn við Saurbæ.

20. júlí 2010

Ganga að Glymi í Botnsdal.

Næsta ganga Ungmennafélagsins. 

Gengið verður að Glym í Botnsdal á sunnudaginn 25. júlí.  Lagt af stað frá bílastæðinu í Stóra-Botni kl. 10.  Gengið verður upp með Botnsánni að austanverðu, vaðið yfir ána fyrir ofan Glym og komið niður að vestanverðu.

15. júlí 2010

Skrifstofa Hvalfjarðarsveitar lokuð

Vegna sumarleyfa starfsmanna verður skrifstofa Hvalfjarðarsveitar lokuð 3.- 6. ágúst að báðum dögum meðtöldum. Þeir sem eiga erindi við skrifstofuna eru eindregið hvattir til þess að senda erindi inn fyrir ofangreindan tíma.

 

Sveitarstjóri. 

15. júlí 2010

Tilnefningar til umhverfisverðlauna

Hér með er óskað eftir tilnefningum til umhverfisverðlauna Hvalfjarðarsveitar fyrir árið í ár.

Tekið er á móti öllum tillögum, hvort sem um er að ræða garða, bújarðir, fyrirtæki, sumarhúsalóðir– hið tilnefnda þarf aðeins að uppfylla það að vera staðsett í Hvalfjarðarsveit.

Vinningslíkur viðkomandi aukast ef góður rökstuðningur fylgir með.

Atburðadagatal

S
M
Þ
M
F
F
L
28
29
30
1
2
3

4
5
6
7
8
9




1
2
3
4
5
6
7

Fyrri mánuður
júlí 2010
Næsti mánuður

Framundan